Ávarp óþekka sjómannsins
„Og í dag dreymir mig um þennan dag. Um sjómannadag þar sem við fögnum því saman að hafa endurheimt fiskimiðin okkar. Þann dag munum við ekki verða sem gestir í hátíðarhöldum Samherja eða Brims. Þá verður okkur ekki boðið til veislu ræningjanna að dást af ránsfengnum. Þann dag ætla ég að lifa og fagna með ykkur. Sá dagur verður gleðilegur sjómannadagur. Megi hann koma sem fyrst.“