Pólitísk átök, innan flokka og utan, heimsveldi, veikt alþjóðakerfi og breytt heimsmynd
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Kjartan Sveinsson formaður Landssambands smábátaeigenda og María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélags og heimsmála. Við förum síðan yfir breytta heimsmynd með Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrum utanríkisráðherra og sendiherra, ekki síst stöðu Íslands og Evrópu. Í lokin ræða þeir bræður pólitíkina með sínu nefi.