Samstöðin
Samstöðin er samfélagssjónvarp og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.
Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
Ábyrgðarmaður frétta er Gunnar Smári Egilsson
Byggð upp af fólki
Þau sem hafa áhuga á að búa til þætti, senda inn fréttir eða taka með öðrum hætti þátt í uppbyggingu Samstöðvarinnar eru hvött til að hafa samband: samstodin@samstodin.is.
Þið getið aðstoðað við að byggja upp dreifikerfið með því að merkja við áskrift á youtube-rás Samstöðvarinnar:
Og með því að læka á Facebooksíðu Samstöðvarinnar
Allir reglulegir þættir Samstöðvarinnar eru aðgengilegir á helstu hlaðvarpsveitum.
Með því að læka efni frá Samstöðinni á samfélagsmiðlum, dreifa því og taka þátt í umræðum byggir þú upp dreifikerfi Samstöðvarinnar.
Alþýðufélagið
Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar.
Félagsgjöld í Alþýðufélagið eru kr. 2.000 á mánuði og renna óskipt til dagskrár og útsendinga Samstöðvarinnar; 1/4 fer til að auka útbreiðslu efnis en 3/4 til þeirra sem leggja til efni og vinnu. Þau sem vilja, geta borgað tvöfalda eða þrefalda áskrift.
Í stjórn Samstöðvarinnar eru: Eyjólfur Guðmundsson eðlisfræðingur og formaður stjórnar, Guðmundur Hrafn Arngrímsson landslagsarkitekt og formaður Samtaka leigjenda, Gunnar Smári Egilsson blaðamaður, María Pétursdóttir myndlistarkona og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir blaðamaður. Og til vara: Björn Jónasson útgefandi, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir blaða- og fræðikona og Sanna Magdalena Mörtudóttir mannfræðingur og borgarfulltrúi.