Reynsluboltar, heimsmálin, handbolti og Pétur Gunn

S08 E021 — Rauða borðið — 01/29/2026

Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Valgerður Rúnarsdóttir læknir og Hallur Magnússon atvinnurekandi ræða fréttir og þjóðmál líðandi stundar. Verk ríkisstjórnar, verðbólgu, handbolta og stöðu íslenskunnar ber á góma. Björn Þorláks hefur umsjón með umræðunni. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir heimsmálin, friðarviðræður um Úkraínu, varnarstefnu Bandaríkjanna og fleira í samtali við Gunnar Smára. Gestir Sigurjóns í íþróttaþættinum Bekknum voru þeir Víðir Sigurðsson, margreyndur íþróttafréttamaður, og Hákon Gunnarsson sem var meðal annars framkvæmdastjóri heimsmeistarakeppninnar sem haldin var á Íslandi árið 1995. Gauti Kristmannsson, prófessor við Háskóla Íslands, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvers vegna skólinn mun útnefna þjóðskáldið Pétur Gunnarsson sem heiðursdoktor á morgun. Afrek Péturs eru mörg og víðfeðm.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí