Forval Vg, íslensk menning, Inngrip vegna olíufélaganna og fjölmiðlar

S08 E025 — Rauða borðið — 02/03/2026

Við hefjum leik á umræðu fjögurra frambjóðenda í VG. Átta vilja verða borgarfulltrúar VG í borgarstjórnarkosningum í vor. Auður Alfífa Ketilsdóttir, Finnur Ricart Andrason, Steinar Harðarson og Hlynur Már Ragnheiðarson sem gefa kost à sér í forvali, ræða við Björn Þorláks um framboðið, áherslur og möguleikana. Gígja Sara Björnsson sviðslistakona, Páll Baldvin Baldvinsson eftirlaunamaður, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og Sverrir Norland rithöfundur ræða við Gunnar Smára um íslenska menningu á viðsjárverðum tímum. Runólfur Ólafsson hjá FÍB ræðir hvort hið opinbera þurfi með inngripi að siða olíufélögin svo verðhækkanir á eldsneyti fari ekki úr böndunum sem hefur áhrif á verðbólgu. Saga olíufélaga er blóði drifin er kemur að verðsamráði hér á landi. Björn Þorláks ræðir við Runólf. Skúli Bragi Geirdal hjá Netvís kynnir samnorræna könnun sem sýnir að Íslendingar hegða sér sumpart töluvert með öðrum hætti en hinar norðurlandaþjóðirnar er kemur að notkun fjölmiðla og samfélagsmiðla. Fjölmiðlalæsi er ekki upp á marga fiska hér á landi. Björn Þorláks ræðir við Skúla.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí