Veit ráðherrann best hvert háskólar eiga að þróast?
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskólaráðherra er að breyta fjármögnun háskólanna til að stýra uppbyggingu þeirra. Eiríkur Smári Sigurðarson rannsóknastjóri og sérfræðingur við hugvísindasvið Háskóla Íslands kemur að Rauða borðinu og ræðir um átökin um háskólanna, um hver eigi að stýra þróun þeirra.