Ásta Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins og fyrrum ráðherra, hefur að því er fram hefur komið hjá Ríkisútvarpinu og Viðskiptablaðinu tjáð fréttamanni Rúv, sem falaðist eftir viðtali við hana, að hún muni aldrei framar ræða við fréttastofu Rúv.
Gott og vel.
Við skiljum sárar tilfinningar Ástu Lóu gagnvart fjölmiðlinum sem bjó yfir upplýsingum sem höfðu mikil áhrif á framtíð ráðherrans.
En þegar Ásta Lóa segir að hún sé hætt að tala við þá fréttastofu sem flestir landsmenn bera traust til, gæti Ásta Lóa allt eins sagt að hún sé hreinlega hætt að tala við almenning. Vegna þess að fréttamenn Rúv eru umboðsmenn almennings. Þeir eru rödd almennings og ef allt er í lagi innan Rúv starfa fréttamenn í umboði almennings.
Með öðrum orðum getur Ásta Lóa ekki handvalið sér fréttamiðla eftir geðþótta sem þingmaður.
Þannig virkar Fjórða valdið ekki.
Getur þingmaður sem neitar að ræða við fréttastofu Rúv starfað áfram? Er áleitin spurning.
Þrýstingurinn
Fjölmiðlar eru hornsteinn lýðræðis þegar blaðamennskan virkar eins og hún á að virka. Gildi fjölmiðla er mest þegar löggjafar-, framkvæmda- eða dómsvaldið bregst og fjölmiðlar upplýsa um meinsemdirnar. Þess vegna er alvarlegt mál þegar valdafólk beitir fjölmiðla þrýstingi í þeim tilgangi að hafa áhrif á störf þeirra.
Í bókinni Besti vinur aðal ræði ég hvernig einn okkar besti blaðamaður var ofsóttur af moldríkum öflum sem keyptu sér skúrka til að sitja um blaðamanninn dag sem nótt. Það var ójafn leikur og ógeðslegur. Í bókinni brýni ég almenning til að standa með þýðingarmikilli blaðamennsku sem við kennum við varðhundshlutverkið vegna þess að með því stendur almenningur með sjálfum sér. Aðhaldsblaðamennska er að mínu mati í bráðri hættu vegna auðræðis og rekstrarvanda þeirra einkareknu miðla sem enn búa þó yfir ritstjórnarlegar sjálfstæði í anda almannahagsmuna.
Á sama tíma færist í vöxt að ráðamenn neiti að ræða við blaða- og fréttamenn þegar erfið mál koma upp. Þeir kæla oft málið í nokkra daga en birta svo með aðstoð spunameistara yfirlýsingu á samfélagsmiðlum, sem fjölmiðlar ættu ekki að éta upp án gagnrýni. Yfirlýsing á samfélagsmiðli má aldrei koma í stað þeirrar skyldu að ráðamenn tali við fréttamenn þegar fjölmiðlar falast eftir viðtölum með hagsmuni almennings í huga. Vanir blaðamenn kunna að spyrja réttu spurninganna og þeir kunna að fylgja spurningum eftir. Þess vegna eru reyndir og sjálfstæðir blaðamenn okkar verðmætasta fjölmiðlafólk.
Blaðamenn snúi bökum saman
Á félagsfundi Blaðamannafélags Íslands í vikunni varð umræða um að ef einn ráðamaður neitar að tala við einn fréttamiðil í því skyni að þagga eða bjaga umræðu, ættu aðrir fréttamiðlar að sameinast um að fordæma slíkt og upplýsa almenning um það – í stað þess að ganga á lagið og njóta þess að sitja einir að heimildinni.
Þegar Ásta Lóa segist aldrei oftar ætla að ræða við Rúv, vona ég að hún hafi ekki hugsað það mál til enda. Ég vona að Ásta Lóa muni endurskoða afstöðu sína.
Á sama tíma þurfa blaðamenn að reyna að snúa bökum saman og huga að langtímahagsmunum í stað þess að hugsa bara um daginn í dag.
Við verðum að verja sjálfstæði og mikilvægi blaðamennskunnar.
Annars deyr hún.
Björn Þorláks, blaðamaður á Samstöðinni
Uppfært: Samkvæmt upplýsingum frá Flokki fólksins er frásögn Viðskiptablaðsins sem stuðst var við sem heimild ekki nákvæm og er samkvæmt fulltrúum Flokks fólksins ofmælt að Ásta Lóa hafi sagt að hún hygðist aldrei síðar ræða við fréttastofu Rúv. Hér er frétt VB: https://l.facebook.com/l.php?u=https%3A%2F%2Fvb.is%2Fskodun%2Fasthildur-loa-talar-ekki-vid-rikisutvarpid2%2F%3Ffbclid%3DIwZXh0bgNhZW0CMTEAYnJpZBEwaGNHWVZscG4wZG1EclpHNwEej8KYqHi535XJzxJe-cXCffQfJGXrhGvJg7Al4U84XG9cvJlgib-eVaArJNE_aem_8d6nDLitA_cRhcHhQ7sxJg&h=AT11dH6EI4ZFRQScenDbfsR53qc44waUUNZKMvckkWjVO8ex5uDFEPm4AxV-hGtvpzKHGHOud3NmFJw-bfVB6e_P_eoUb1q4p21qmiPOukm3GRSJzdUWrD3cFeLSsbB9XBTtS9_CuSzrBg&__tn__=%2CmH-R&c[0]=AT22JAhYs437lfzIIYervhiKe5pzLnksTd42TINOGSovuWMNZkWvH-fP9Us2SHmAhecK5M82ot9aZe4ZIvFA4_oTTAxGLKN_wONMqY06d_ow03-DKsqrVHzk57rvmPAgJ7hAKeLfc2kzTtdUu5oYJn1k9WPovlHcgIwT1AscY8rTtKAF7Ji6Qc18-rP7hVxe23oiP_t_fsNTkrWd6eTbj75lBxwQ