Samþykktir

1.gr. 
Félagið heitir Alþýðufélagið. Lögheimili þess er að Bolholti 6, 105 Reykjavík.

2. gr. 
Tilgangur félagsins er menningarstarfsemi.

3. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að efna til funda, útgáfu og umræðu um mikilvæg samfélagsmál með öðrum hætti.

4. gr. 
Allt fólk getur orðið félagar í félaginu.

5. gr. 
Starfstímabil félagsins er almanaksárið.  Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs.  Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi. 

6. gr. 
Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. ágúst ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti.  Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála.  Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Lagabreytingar
  5. Ákvörðun félagsgjalds
  6. Kosning stjórnar
  7. Önnur mál

7.gr.
Aðalstjórn félagsins skal skipuð 17 félagsmönnum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum, kýs formann, ritara og gjaldkera, sem saman mynda framkvæmdastjórn sem starfar í umboði stjórnar. Framkvæmdastjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda, en ber vegamikil mál undir aðalstjórn. Formaður boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta framkvæmdastjórnar.

8.gr.
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjöld skulu innheimt mánaðarlega.

9. gr. 
Rekstrarafgangi af starfsemi félagsins skal varið til að auka enn við starfsemi félagsins. 

10. gr. 
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til þeirra góðgerðarmála sem ákveðin verða á slitafundi.   

Lögum þessum var síðast breytt á aðalfundi 10. apríl 2025.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí