ESB, snjallsímabann, fjölmiðlar, okur og Ungverjaland

S08 E018 — Rauða borðið — 01/26/2026

Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Thomas Möller ráðgjafi eru ósammála um hvort Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið. Þau brýna rök sín í spjalli við Gunnar Smára. Ásdís Bergþórsdóttir sálfræðingur efast um að bann á snjallsíma- og samfélagsmiðlanotkun barna muni bæta líða barna, heldur jafnvel auka vanlíðan hjá hópi barna. Ásdís útskýrir þetta fyrir Gunnari Smára. Akademískt frelsi og frelsi fjölmiðla sætir árásum. Evrópuráðið lýsir áhyggjum af öfugþróun. Henry Alexander Henrysson heimspekingur ræðir við Björn Þorláks um viðsjárverða veröld. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum ræðir mál sem varða neytendur í samtali við Björn Þorláks. Olíufélögin  hafa gengið á lagið eftir kerfisbreytingar og seilast djúpt í vasa neytenda með hæstu álagningu. Snærós Sindradóttir listfræðingur segir Gunnari Smára frá komandi kosningum í Ungverjalandi, þar sem Victor Orban gæti fallið eftir langan valdatíma.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí