Framboð, börn, efnahagur og Epstein

S04 E005 — Synir Egils — 02/08/2026

Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingkona Pírata, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og Andrea Sigurðardóttir blaðakona á Morgunblaðinu og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins. Síðan ræða þau Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Kvenréttindafélags Íslands, Jenný Kristín Valberg teymisstjóri í Bjarkarhlíð, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis og Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur Epstein-skjölin, hverju þau lýsa og hvaða áhrif þau kunna að hafa á stjórnmálin víða um okkar heimshluta. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí