Framsókn, reynsluboltar, Salka, strandminjar og íslenskan
Nýs formanns Framsóknarflokksins, sem kosinn verður um helgina, bíður það erfiða verkefni að reisa flokkinn við til fylgis við nýja tíma. Flokkurinn er í kreppu og mælist með lágt fylgi. Af er sem áður var í þeim efnum. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur fer yfir samtímann og sögu flokksins í spjalli við Björn Þorláks. Erna Bjarnadóttir, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru gestir Sigurjóns Magnúsar í þættinum að þessu sinni. Stjórnmálin, lífeyrir, kynslóðir og margt fleira bar á góma. Lífsreynsla þeirra leynir sér ekki. Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við Gunnar Smára. Mikil söguleg verðmæti glatast þar sem strandminjar verða eyðileggingunni að bráð á hverju ári. Eyþór Eðvarðsson, sem er einlægur áhugamaður um varðveislustrtrandminja settist niður með Sigurjóni Magnúsi. Tilefnið var hvernig hafið hefur leikið Reynisfjöru. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur ræðir stöðu íslenskunnar í samtali við Björn Þorláks. Deilur sveitarstjórnarfulltrúa á Vopnafirði ber á góma í því samhengi, læsi barna og fleira.