Fréttir Samstöðvarinnar, útvistuð geðheilbrigðisþjónusta, þingveturinn og mótmæli

S06 E112 — Rauða borðið — 14. júl 2025

Við byrjum á nýjum fréttatíma Samstöðvarinnar, ræðum söguleg tíðindi hér innan lands og erlendis og förum yfir öll mál ríkisstjórnarinnar sem döguðu uppi í deilum á þingi. Hafsteinn Michael Guðmundsson, fyrrum starfsmaður Mannvirðingar sem hrökklaðist úr starfi vegna kulnunar, lýsir starfsaðstæðum að Jafnaðarseli, nú Reynimel og ræðir um slæman starfsanda, stjórnunarhætti, launagreiðslur undir taxta og öryggi starfsfólks og skjólstæðinga sem er ábótavant innan geðheilbrigðisþjónustunnar. Ólafur Þ. Harðarson prófessor fer yfir þingveturinn sem nái fram yfir mitt sumar og stöðu flokkanna að honum loknum. Við birtum í lokin viðtöl við fólk sem var að mótmæla Íslandsheimsókn Ursula von der Leyen.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí