Innflytjendur, orka, efnahagur, Vg og Sjálfstæðisflokkurinn
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóri í Vík í Mýrdal, Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, og ræða innflytjendamál, orkumál, efnahagsmál og önnur mál sem hafa verið ofarlega í umræðunni í vikunni. Þeir bræður taka stöðuna á Alþingi. Síðan kemur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og þeir bræður spyrja hana um þær breytingar sem hún stendur fyrir og hefur staðið fyrir, stöðuna á flokknum hennar og ríkisstjórninni. Fyrir hvað stendur Áslaug Arna í pólitíkinni?