Kvótinn, Sameinuðu þjóðirnar, Kamban og sósíalismi

S04 E138 — Rauða borðið — 25. sep 2023

Helgi Hlynur Ásgrímsson útvegsbóndi sest við rauða borðið og ræður sjávarútvegsstefnuna, kvótann og óréttlætið sem honum fylgir. Og metur hvort líkur séu á að Svandís Svavarsdóttir nái fram einhverjum breytingum á stefnunni. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna er í New York. Helen Ólafsdóttir hlustaði á ávörp þjóðarleiðtoga og greinir fyrir okkur þræðina í þeim ræðum. Banamaður Guðmundar Kambans hefur verið nefndur. Við fáum Jón Yngva Jóhannsson bókmenntafræðing til að segja okkur frá Kamban og öðrum höfundum sem tengdust þýskum yfirvöldum á nasistatímanum. Í lokin kemur Einar Ólafsson skáld og bókavörður og ræðir sósíalismann, sögu hans og sína reynslu. Og metur hvort þörf sé á sósíalisma.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí