Rifist í þinginu, lagareldi, reynsluboltar og borgin þvert á flokka
Alþingismennirnir Bryndís Haraldsdóttir og Dagur B. Eggertsson tókust á um Evrópusambandið og Nató og öryggismál fyrir Ísland. Dagur telur að öryggi Íslands myndi aukast við aðild að Evrópusambandinu meðan Bryndís telur það fjarri lagi. Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur og Þorgerður María Þorbjarnardóttir hjá Landvernd ræða frumvarpsdrög Hönnu Katrínar um lagareldi. Þau eru gagnrýnin á stöðu mála út frá umhverfisvernd og fleiri þáttum. Björn Þorláks ræðir við þau. Lárus Guðmundsson Miðflokksmaður og atvinnurekandi, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Viðreisn og Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor emerita ræða fréttir líðandi stundar og þjóðmál með Birni Þorláks. Barnavernd, háskólakrísu, heimsöryggi, efnahags- og umhverfismál ber á góma. Sigfús Aðalsteinsson fasteignasali og Baldur Borgþórsson ráðgjafi eru í tveimur efstu sætum á lista Borgarinnar okkar, flokks sem enn hefur ekki mælst með fylgi. Þeir ætla samt að bjóða sig fram og segja Gunnari Smára hvers vegna.