Ritskoðun, rasismi og auðlindir

S04 E022 — Rauða borðið — 23. feb 2023

Endurskrif á bókum Roald Dahl hefur vakið upp mikla umræðu. Og andmæli. Þorsteinn Siglaugsson formaður Málfrelsis og Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður koma að Rauða borðinu og segja skoðanir sínar á þessu. Og hvaða hættu þeir sjá í þessum aðgerðum. Tryggvi Scheving Thorsteinsson og Snorri Sturluson koma síðan að borðinu og ræða um rasisma í skólum og getuleysi kerfisins að takast á við þann vanda. Síðan fer Indriði H. Þorláksson yfir möguleika þjóðarinnar á að ná til sín arðinum af öllu auðlindunum sem hún á. Og svo segjum við fréttir dagsins.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí