Staðsetning geðdeildar, Trumptíminn, Réttur er settur og trúverðugleiki

S08 E032 — Rauða borðið — 02/11/2026

Margir lýsa vaxandi áhyggjum af staðsetningu nýja Landspítalans. Hildigunnur Sverrisdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks ýmis álitaefni er tengjast staðsetningunni og mikilvægi geðverndar. Hún deilir jafnframt persónulegri sögu. Þau Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir ráðgjafi og aðjúnkt við Háskólann á Bifröst og Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent á menntavísindasviði HÍ mæta í Trumptímann til Laufeyjar Líndal að þessu sinni. Farið er yfir fréttir vikunnar úr landi Trump sem að venju eru margar og skrautlegar og misskemmtilegar. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir júritísk álitamál sem tengjast fréttum líðandi stundar í samtali við Björn Þorláks. Epstein-skjölin, jöfnun atkvæðisréttar í tengslum við nýja stjórnarskrá, gervigreind og börn og fleira ber á góma. Hefur trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar beðið hnekki með háu vaxtastigi og verðbólgu? Hvað með ESB? Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, ræðir stöðuna og horfurnar við Björn Þorláks.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí