Trump, listir, áfengi og Framsókn

S08 E026 — Rauða borðið — 02/04/2026

Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða við Gunnar Smára áhrif Trump á hugmyndir okkar, bandarískt samfélag og heiminn. Stuðningur við listir er á undanhaldi. Skapandi greinum hefur verið hent út af borðinu. Fjölmörg börn eru á biðlista í tónlistarnámi. Hallveig Rúnarsdóttir söngkona og kennari, Gunnar Guðbjörnsson söngvari og skólastjóri, Kristinn Örn Kristinsson píanisti og píanókennari og Freyja Gunnlaugsdóttir músíkant og skólameistari MÍT ræða Grammy-ræðu Laufeyjar og hvernig Ísland geti áfram skapað öflugt umhverfi fyrir listina. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Framsóknarflokkurinn er á krossgötum og styttist í að flokksmenn kjósi sér nýjan læiðtoga. Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, ræðir pólitík og stöðu flokksins í samtali við Björn Þorláks. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi ræðir í samtali við Björn Þorláks normalíseringu áfengisdrykkju við öll tækifæri, siðleg sem ósiðleg.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí