Trump, lögfræði, Ormstunga og Myrkir músíkdagar

S08 E020 — Rauða borðið — 01/28/2026

Nichole Leigh Mosty doktorsnemi, Magnús Helgason sagnfræðingur, Guðmundur Auðunsson hagfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara yfir vikuna hjá Donald Trump með Gunnari Smára og um hvernig verk hans og orð hafa áhrif á samfélagið, heiminn og hugmyndir okkar. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir meint svindl í handbolta, harkalegar handtökur fyrir norðan, heimsmálin, Trump og ýmis lagaleg álitaefni sem tengjast fréttum líðandi stundar í samtali við Björn Þorláks. Höfundarnir Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson og leikararnir Jakob van Oosterhout og Ilmur Kristjánsdóttir ræða söngleikinn Ormstungu við Gunnar Smára. Stórhátíðin Myrkir músíkdagar hefs by t á morgun í Reykjavík og verður boðið upp á sannkallaða veizlu næstu daga. Gunnhildur Einarsdóttir framkvæmdastjóri hátíðarinnar fer yfir sviðið með Birni Þorláks.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí