Nú stendur yfir orrusta um veiðigjöld á Alþingi og féllu þung orð um fundarstjórn áður en fyrstu umræðu var frestað í nótt. Minnihlutinn stundar málþóf þar sem hver þingmaður stjórnarandstöðunnar dillar öðrum og finnur leiðréttingu ríkisstjórnarinnar flest til foráttu.
Heimildin segir í dag frá því að ungur hagfræðingur, Birta Karen Tryggvadóttir, sé á mála hjá SFS við að hjóla í málflutning Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra sem leggur fram frumvarpið um hækkun veiðigjalda.
Gunnhildur Fríðar Hallgrímsdóttir, sem Samstöðin ræddi ítarlega við á dögunum, nemi við Harvard-háskóla, gagnrýnir að því er Heimildin segir frá, að Birta Karen starfi fyrir SFS en þess sé ekki getið í myndböndunum.
Það má því segja að öllum brögðum sé beitt í þeirri heljarslóðaorrustu sem nú fer fram gegn ægivaldi og gríðarlegri auðsöfnun stórútgerðarinnar sem nýtir sameiginlega auðlind landsmanna.
Sjá viðtal Samstöðvarinnar við Gunnhildi Fríðu hér: Rauða borðið: Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir Gefur lítið fyrir íslenska hagstjórn