BRICSkonur, landsframleiðsla —og feðraveldið auðvitað

Skoðun Sara Stef. Hildar 09/30/2023

Kannski hef ég rangt fyrir mér en mig grunar að meginstraumsfjölmiðlar hafi ekki fjallað svo mikið um nýlegan fund G-77 ríkjanna í Havana, en það eru 77 ríki innan SÞ sem kölluð hafa verið þróunarríki. 

Mánuði fyrr, undir lok ágúst, var haldinn sögulegur fundur meðal þeirra þjóða sem vilja storka efnahagsyfirráðum Bandaríkjanna í heiminum, BRICS, en skammstöfunin stendur fyrir upphafsstafi þeirra þjóða: Brasilía, Rússland, Indland, Kína og S-Afríka. 

Þessir tveir fundir eiga það sameiginlegt að vilja losna undan fjötrum efnahagslegrar drottnunar bandaríkjadollars og vilja setja upp sitt eigið alþjóðlega hagkerfi þar sem dollarinn er ekki notaður sem gjaldmiðill. 

Þetta er allt gott og vel og spennandi að fylgjast með þótt ekkert sé orðið af þessum áformum enn, ég held í grunninn að þetta sé af hinu góða. Eitt meginmarkmið beggja blokka er að byggja upp margpóla heim og vinna þannig gegn þeim eyðileggjandi áhrifum sem einpóla heimsmynd Bandaríkjanna þrífst með tilheyrandi kúgun og ofbeldi í ýmsum myndum. 

Ég hef aðeins verið að skoða BRICS Feminist Watch:

“Formed in 2016, the BRICS Feminist Watch (BFW) is a feminist alliance from the BRICS countries that brings the collective strength of feminist analysis and activism to promote gender responsive and inclusive economic development. The BRICS forum emerged as a voice from the global South, with a vision for a more just, democratic, and equal world. “

BRICS Feminist Watch hafa staðið fyrir millilandafundum og -samkomum frá stofnun og tala um að vinna með the BRICS forum í samstarfi við New Development Bank sem er einhverskonar IMF, alþjóðagjaldeyrissjóður eða World bank þessar efnahagsbandalags. 

“The integration of a feminist agenda of the South into the BRICS policies and institutions is vital to achieving these goals. Therefore, we engage with the forum and the New Development Bank (NDB) to advocate for gender equality in the political economy and development paradigm. The NDB has welcomed BFW recommendations on potential action for the NDB to enhance transparency, accountability, social responsibility, and diversity.”

Það er nú fallegt af þeim í NDB. Að taka þeim svona opnum örmum. Þeir munu örugglega skoða málin og sannarlega vita af þeim. 

En í ljósi feðraveldisfýlunnar, sem finna má um víða veröld, get ég þess vegna ekki, þrátt fyrir allt, sagt að ég sé mjög bjartsýn á að hið feminíska bandalag, sem ég hlýt samt að vilja lofa fyrir framtakið og vonina, hafi neitt raunverulegt afl inn í þetta efnahagslega feðraveldi sem er að taka á sig mynd þarna, því miður. Vonandi hef ég samt rangt fyrir mér.

Í nýrri grein Júlíusar K. Valdimarssonar í  Neistum segir réttilega: „Í löndunum sem áttu þarna fulltrúa búa yfir 80% jarðarbúa og samanlögð þjóðarframleiðsla ríkjanna er 49% af allri framleiðslu heimsins.” En engu að síður eru þessi ríki öll undirsett kerfislægum feðraveldum sem er stærsti kerfislegi vandi allra kvenna íöllum samfélögum heims sem kalla sig “siðmenntuð”. Landsframleiðsla er fyrsta forsenduvillan í öllum feðraveldisbandalögum en í útreikningum landsframleiðslu er enn mjög langt í land með að gera grein fyrir launuðu og ólaunuð framlagi kvenna sem undirbyggir þann raunveruleika karla sem felst í að geta yfirleitt farið “í vinnuna”. 

Ennfremur segir í Neistum: „Leiðtogarnir lýstu allir sem einn vilja til þess að sameina krafta sína og rödd hins hnattræna suðurs fyrir fund Sameinuðu þjóðanna sem haldinn var vikunni á eftir á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar.” 

Hvað get ég sagt? Hvernig kemurðu feðraveldinu á dagskrá án þess að segja feðraveldi? Nú, með því að segja vísindi, tækni og nýsköpun! Bara svona.

En hvar er allt það sem byggir grunninn og skiptir því grundvallarmáli fyrir allt sameinað mannkyn; hvar er umhverfið, hvar er barnæskan, menningin og listirnar? Ekki á dagskrá Sameinuðu feðraveldisþjóðanna —það er nokkuð ljóst.

Hvar er þá líka hinn raunverulegi margpóla heimur og heimsmynd sem tekur ekki til greina sjónarmið og forsendur 50% mannkyns? Er það raunverulega “margpóla” heimur sem við erum þá að tala um?

Sameinuðu feðraveldisþjóðirnar hafa nefnilega engan tíma eða pláss fyrir það sem undirbyggir þó veruleika þeirra; konur og grundvallarframlag þeirra til heimsins. Hinn raunverulega margpóla heim. Grundvallarframlag kvenna, sem er beinlínis forsenda þess að karlar geti fundað á þessum sameinuðum karlavettvangi.
Það er eins óþarft að ræða hlut eða aðkomu kvenna “inn í heim karlanna” eins og því er þrálátt stillt upp í jafnréttisumræðunni, eins og það er að ræða eða taka veruleika kvenna með í dæmið til að byrja með! 

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu.

Skrá mig arrow_forward
Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí