Forsetakosningarnar á Íslandi hafa lítið vægi miðað við Evrópuþingkosningarnar og ættu íslenskir fjölmiðlamenn að huga frekar að breytingum sem kynnu að vera í pípunum í Evrópu en heimilishaldinu á Bessastöðum.
Þetta segja stjórnmálaskýrendur sem Samstöðin hefur rætt við vegna Evrópuþingkosninganna sem hefjast á morgun. Búist er við fyrstu tölum síðdegis á sunnudag.
720 þingsæti á Evrópuþinginu eru í boði og hafa um 370 milljónir kjósenda rétt til að ganga að kjörborðinu. Kosningaþáttaka gæti orðið um 50 prósent. Margir óttast aukinn tilstyrk harðlínu- og hægri flokka sem ógni hófsamari stefnu og framtíð Evrópu sem heildar. Kristján Kristjánsson, heinmspekingur og prófessor við breskan háskóla telur að framtíð Íslendinga ráðast meir af kosningunum í Evrópu en í baráttum um Bessastaði.
Ursula von der Leyen, núverandi forseti framkvæmdastjórnar ESB, gæti þurft að glíma við flóknar málamiðlarnir ef úrslit verða harðlínuölfum í hag líkt og kannanir mæla að gæti orðið. Hafa Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar og hinn ítalska Meloni verið til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum vegna kosninganna fram undan síðustu daga, sem og Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands,
Niðurstöður kosninganna gætu hæglega haft töluverð áhrif á samband EES-ríkjanna við Evrópusambandið, ekki síst ef harðlínu-hægri flokkar og flokkahópar auka styrk sinn á þinginu og beita áhrifum á stefnumál Evrópusambandsins, að því er Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir í viðtali við Rúv.
Um hörðustu flokkana segir Eiríkur
„Í þessu eru vissar hættur fyrir EES-samninginn því þessir flokkar huga fremur að hagsmunum heima fyrir heldur en að víðari alþjóðasamvinnu. Því gæti þrengst um þá sem standa fyrir utan bandalagið. Á móti kemur að þá er líka hugsanlegt að verði grundvallarbreyting á bandalaginu og það verði veigaminna og þjóðríkin fái aukið vægi, þá færist bandalagið jú nær því sem bæði Noregur og Ísland vilja sjá. Svo það fer kannski eftir þróuninni hvort þarna skapist fremur tækifæri eða ógnir, en ég held nú samt að ógnin sé augljósari.“