Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims og formaður SFS, segir að áratugir hafi liðið síðan Ríkisútvarpið gaf honum síðast færi á viðtali.
Þetta staðhæfði Guðmundur í viðtalinu á Bylgjunni í morgun.
Samstöðin hefur sent fréttastofu Rúv erindi þar sem spurt er hvort þetta sé sannleikanum samkvæmt hjá forríka forstjóranum sem hefur sogað milljarð á milljarð ofan upp úr sameiginlegri auðlind landsmanna, hafinu á því blómaskeiði sem einkennt hefur rekstur kerfis sem landsmenn telja óréttlátt og vilja hærri gjöld.
Guðmundur gaf í skyn að ríkið, það er að segja starfsmenn Rúv, væri með stefnu á sama tíma og Bylgjan væri fulltrúi frjálsrar fjölmiðlunar. Flest bendir til að útgerðin sé að kaupa sér aukin ítök í fjölmiðlaveldi Sýn og tók sjálf Heiðrún Lin Marteinsdóttir sæti í stjórn Sýnar fyrir skemmstu. Hún er framkvæmdastjóri SFS.
Gæjar sem vita ekki neitt
Guðmundur í Brimi, formaður SFS, fór í löngu máli yfir söguleg rök sem hann taldi sýna fram á að ekki væri ráðlegt að hækka veiðigjöld á stórútgerðina. Hann sagði að einhverjir gæjar í Reykjavík hefðu skrifað veiðigjaldafrumvarpið, „gæjar sem vissu ekki neitt“.