Borgin tekur þátt í að auka verðbólguna

Skoðun Sanna Magdalena Mörtudóttir 05/02/2023

Í borgarstjórn vorum við að ræða ársreikning borgarinnar fyrir árið 2022. Hafði ýmislegt um stöðuna að segja, m.a. þetta:

Í kjölfar kórónuveirunnar, ákvað borgarstjórn að lækka fasteignaskatta á fyrirtæki. Þetta tók gildi árið 2021. Þar sem fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði voru lækkaðir úr 1,65% af fasteignamati húss og lóðar,  niður í 1,60%. Kostnaðaráhrifin vegna þessa, þ.e.a.s. hvað það kostaði að lækka þessa skatta, voru um 450 milljónir á verðlagi ársins 2021. Það þýðir að með því að lækka skatta á fyrirtæki, þá missti borgin næstum því hálfan milljarð sem hún hefði gert ráð fyrir árið 2021. Og af hverju fer ég í þetta? Jú það er vegna þess að skattalækkanir draga dilk á eftir sér, sem þarf einhvernveginn að fylla upp í.

Skattar voru lækkaðir á fyrirtæki og gjaldskrárhækkanir fylgdu  í kjölfarið. Seilst var dýpra ofan í vasa almennings í borginni, með hækkun gjaldskráa tvisvar sinnum á árinu 2022. Gjaldskrár voru hækkaðar um áramótin sem hefur verið venjan en svo aftur í september og orðað sem „leiðrétting“ vegna áfallinnar verðbólgu. Ef það er eitt sem þarf að gera, þá er það  að vernda íbúa fyrir verðbólgu. Borgin beinlínis tekur þátt í að auka hana með þeim hækkunum sem ráðist hefur verið í.

Það skýtur skökku við að gjaldskrár eru hækkaðar og nefndar sem leiðrétting, til að mæta kostnaðinum við það sem það kostar að veita þjónustuna en á sama tíma er upphæð fjárhagsaðstoðar eins lág og hún er og hefur ekki verið hækkuð.

Árið 2022 var grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklings, 18 ára eða eldri, sem rekur eigið heimili allt að 217.799 kr. á mánuði, fyrir skatt. Þarna er ekki brugðist við til að mæta lífskjarakrísunni, til að mæta þeim sem reiða sig á neyðaraðstoðina sem fjárhagsaðstoðin er hugsuð sem. Þau sem eru með tekjur fjárhagsaðstoðar neyðast til þess að sækja sér mat hjá hálparstofnunum því að upphæðirnar duga ekki. Gjaldskrár eru hækkaðar til að mæta útgjöldum borgarinnar, en fjárhagsaðstoð fyrir þau sem hafa ekkert annað að leita í, er ekki hækkuð, þrátt fyrir að það sé orðið dýrara að lifa og slíkt bitnar verst á þeim sem minnst hafa.

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu.

Skrá mig arrow_forward
Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí