Munurinn er 32.992 krónur á 10 þúsund dollurum, þetta skiptigengi er mjög hagstætt fyrir hinn almenna launamann sem er að gera lítil viðskipti í ferðalögum og netverslun.
En ekki treysta í blindni:
Ég hvet fólk til að nálgast einkahlutafélagið sem Indó banki er með fyrirvara. Það hefur enn ekki komið í ljós hvernig þeir ætla að mynda tekjur: Hvort þeir ætli að selja upplýsingar um viðskiptavini, leggja áherslu á lánastarfsemi, þjónustugjöld eða leitast eftir markaðshlutdeild til að verða síðan keyptir af stórum banka seinna? Í eigendahópnum eru aðilar sem ekki er treystandi.
Þetta gæti orðið frábært verkefni ef þetta væri samvinnufélag, t. d. í eigu verkalýðsfélaga eða annarra hópa sem er hægt að treysta að verja almannahagsmuni.