Hvað breytist með frjálsum handfæraveiðum?
- Sjávarbyggðir endurheimta að hluta glataðan nýtingarrétt að sjávar-auðlindinni.
- Frjálsar-handfæraveiðar tryggja nýliðun inn í atvinnugreinina.
- Frjálsar-handfæraveiðar tryggja atvinnufrelsi og jafnræði að nýtingu sjávar-auðlindarinnar.
- Frjálsar-handfæraveiðar tryggja sjávarbyggðum auknar tekjur (hærra fiskverð á fiskmörkuðum)
- Frjálsar-handfæraveiðar tryggja ferskasta/besta fiskinn.
- Frjálsar-handfæraveiðar tryggja ríkissjóði auknar tekjur (hærra fiskverð á fiskmörkuðum)
- Frjálsar-handfæraveiðar skapa betra samfélag fyrir alla.
Hvað breytist þegar allur fiskur verður seldur á fiskmarkaði ?
- Aðskilnaður veiða og fiskvinnslu
- Fiskverð upp úr sjó hækkar um 30-40%
- Sjávarbyggðir fá aukna tekjumöguleika og styrkja þannig grunnstoðir og aðra innviði.
- Útgerðin fær meiri tekjur og borga meira til samfélagsins.
- Sjómenn fá meiri tekjur og borga meira til samfélagsins
- Bæjarfélög fá meiri tekjur og styrkja þannig grunnstoðir og aðra innviði í samfélaginu.
- Ríkisjóður fær meiri tekjur og styrkir grunnstoðir/innviði alls þjóðfélagsins.
- Fiskvinnslufólk fær meira atvinnuöryggi og stöðugri tekjur.
- Flutningskostnaður frá A-B verður í raun verndartollur fyrir fiskvinnslur á löndunarstað.
- Nýliðun í fiskvinnslu verður staðreynd.
- Veiðigjöld/auðlindagjöld hækka.
- Renta sjávarútvegsins verður eftir í bæjarfélögunum og flæðir um allt þjóðfélagið.
- Við byggjum upp samfélag þar sem er pláss fyrir alla.
Hvað breytist með óframseljanlegt DAGA-kerfi sem fiskveiðistjórn ?
- Úthlutun daga í stað tonna fyrir skipa/bátaflokka.
- Allur veiddur fiskur skilar sér í land.
- Brottkast/framhjá-löndun/ísprufusvindl heyrir sögunni til (hafnarvigt og fiskmarkaðir vigta fiskinn)
- Heimavigtun og endurvigtun heyrir sögunni til (hafnarvigt og fiskmarkaðir vigta fiskinn)
- Allt eftirlit verður einfaldara og skilvirkara.
- Nýliðun í atvinnugreinina verður auðveldari á allan hátt og kostar ekki milljarða.
- Sóknargeta fiskiskipaflotans er þekkt áratugi aftur í tímann (löndunardagar)
- Auðveldara verður að bregðast við óvæntum breytingum í hafinu strax með fjölgun/fækkun daga.
- Einokun og fákeppni í sjávarútvegi heyrir sögunni til (aðskilnaður veiða og fiskvinnslu = fiskmarkaðir)
- Ógnar-vald ríkisstyrktu-einokunar-útgerðanna yfir stjórnmálafólki/flokkum heyrir sögunni til.
- Rentan af sjávarútvegi mun flæða um æðar þjóðfélagsins, en ekki vera geymd í skattaskjólum stærstu eiganda ríkisstyrktu-einokunar-útgerðanna, aðskilnaður veiða og fiskvinnslu tryggir það í gegnum fiskmarkaðina.
- Rentan af 70% úthlutaðra aflaheimilda er 50-milljarðar -/+ á hverju fiskveiðiári frá 2011 til dagsins í dag, þessi renta er á bankareikningum skattaskjólsfélaga með erlenda kennitölur í eignarhaldi ríkisstyrktu-einokunar-útgerðanna í útlandinu, sem hafa yfirgefið íslenska hagkerfið og hafa þess vegna enga samfélagslega ábyrgð gagnvart þjóðfélaginu Íslandi. (heimild Indriði H. Þorláksson fyrrum ríkisskattstjóri).