1. Mun íslenskum landbúnaði farnast BETUR/VERR með ESB-aðild ?
2. Mun íslenskum iðnaði farnast BETUR/VERR með ESB-aðild ?
3. Mun íslenskum sjávarútvegi farnast BETUR/VERR með ESB-aðild ?
4. Mun íslenskri nýsköpun farnast BETUR/VERR með ESB-aðild ?
5. Mun samkeppni á banka/tryggingar-markaði farnast BETUR/VERR með ESB-aðild ?
6. Mun ferðaþjónustu farnast BETUR/VERR með ESB-aðild ?
7. Mun stóriðju (ál/kísill) farnast BETUR/VERR með ESB-aðild ?
8. Mun íslenskum almenningi farnast BETUR/VERR með evru frekar en krónu með ESB-aðild ?
Efalaust vakna 1000 spurningar til viðbótar og sitt sýnist hverjum, það skiptir máli að samtalið hefjist vegna væntanlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort þjóðin vill yfirhöfuð hefja viðræður/endurvekja samningaviðræður um aðild að ESB.
Mestu skiptir að samtalið verði EKKI háð úr skotgröfum með/móti heldur um staðreyndir.
Hvað sem skoðanakannanir umliðna ára hafa sagt okkur er nokkuð ljóst að fjölmargir eru tvístígandi, þeir/þau/þær þurfa skýr svör sem eru byggð á staðreyndum.
Vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um nýju-stjórnarskrána 20.10. 2012 er EKKI í boði að bjóða almenningi aftur ráðgefandi þjóðaratkvæði, það verður að vera BINDANDI þjóðaratkvæðagreiðsla.
Ég vona að stjórnmálin/fræðingar/almenningur/félagasamtök og síðast en ekki síst allir fjölmiðlar taki virkan þátt í þessu mikilvæga samtali.