Samtrygging verkalýðshreyfingar og samtaka atvinnulífsins í eftirlaunasjóðum launafólks

Skoðun Kári Jónsson 16. feb 2025

Er það mat forystufólks í verkalýðshreyfingunni að SA-fólkið eigi rétt á því að skipa til jafns við eigendur eftirlaunasjóðanna (launafólk) í stjórnir eftirlaunasjóðanna og tryggja þannig gagnkvæmt neitunarvald um hvernig eftirlaun okkar eru ávöxtuð/fjárfest ? Launafólk hefur 100% eignarhald á eftirlaunasjóðunum.

Gagnkvæmt neitunarvald er samtrygging forystufólks beggja samtakanna (ASÍ og SA)

Þegar eftirlaunasjóðirnir voru stofnaðir 1969 varaði Eðvarð Sigurðsson verkalýðsforingi við stjórnarsetu fulltrúa atvinnulífsins (SA) í eftirlaunasjóðunum, vegna mikilvægi þess að stofna eftirlaunasjóði fyrir launafólk/verkafólk var núverandi fyrirkomulag samþykkt.

Öllum þessum árum seinna (56ár) hefur ekki farið fram skoðanakönnun að ég best veit á meðal félagsmanna verkalýðsfélaganna í landinu um hvort sé tímabært að endurskoða þetta fyrirkomulag þar sem samfélagið okkar hefur tekið stökkbreytingum frá því fyrir 56 árum.

Eftir hrun-þjófnað (2008) kom í ljós gríðarlegt tap eftirlaunasjóðanna vegna fjárfestinga í ný einkavæddum bönkum og öðrum fyrirtækjum.

Þetta tækifæri var ekki notað til að endurskoða/endurmeta aðild SA-fólksins í stjórnum eftirlaunasjóðanna okkar illu heilli fyrir sjóðfélaga/launafólk (eigendur eftirlaunasjóðanna) af hverju ekki ? Forystufólk verkalýðshreyfingarinnar skuldar félögum sínum skýringar.

Að mér skilst hafa verið gerðar margháttaðar breytingar á lögum um eftirlaunasjóðina okkar hafa verið samþykktar á alþingi á milli 200 og 250 samtals, en engin sem lítur að stjórnarsetu SA-fólksins í eftirlaunasjóðum sem er í 100% eignarhaldi sjóðsfélaga, það er athyglisvert í meira lagi.

1. Hvet foringja verkalýðsfélaganna að framkvæma skoðanakönnun á meðal félaga sinna um hvort SA-fólkið eigi að hafa sína fulltrúa í stjórnum eftirlaunasjóðanna.

2. innleiða verður beint lýðræði sjóðfélaga í kosningum til stjórna eftirlaunasjóðanna.

3. Svara verður þeirri spurningu skýrt og skorinort af hverju stjórnir eftirlaunasjóðanna eru óvirkir hluthafar í fyrirtækjunum sem eru í meirihlutaeign eftirlaunasjóðanna.

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu.

Skrá mig arrow_forward
Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí