Þeir þekkja orðin – en ekki ástandið

Skoðun Hjálmtýr Heiðdal 10/09/2023

Allir núlifandi Palestínumenn hafa heyrt talað um frið og öryggi – en þeir hafa upplifað hvorugt – aldrei!

Í sjötíu og fimm ár hafa her og lögregla síonistanna sem stofnuðu og stýra Ísrael herjað á Palestínumenn. 1947 byrjuðu síonistar að hrekja Palestínumenn af heimilum sínum og 1967 héldu þeir áfram og var þá búið að reka rúma milljón íbúa burt með ofsóknum og fjöldamorðum. Ísraelskir sagnfræðingar hafa skráð um 70 slík fjöldamorð. Palestínufólkið sem var ekki rekið burt 1947-49 var sett undir herlög í 18 ár og skotið á færi ef það mótmæltu kjörum sínum. Eftir hertöku Vesturbakkans og Gaza 1967 hófu yfirvöld í Ísrael að hrekja fólk úr bæjum og þorpum í suður hluta landsins og eru flestir núverandi Gazabúar slíkir flóttamenn og afkomendur þeirra.

Ísraelsstjórn hóf síðan stórfelldan flutning ólöglegs landtökufólks yfir á búsvæði Palestínumanna á Vesturbakkanum og eru enn að. Samtímis þessu var talað um friðarviðræður og byggður ólöglegur múr til þess að tryggja landstuldinn enn frekar. Árið 2005 fjarlægðu síonistar ólöglegu landtökubyggðirnar frá Gaza og settu strandlengjuna, þar sem tvær milljónir búa í dag, í herkví. Þeir sprengdu upp flugvöllinn á Gaza, settu á hafnbann og reistu girðingu umhverfis svæðið. Við minnsta mótþróa frá Gaza var varpað sprengjum og stórskotaliði beitt miskunarlaust. 2014 drápu ísraelskir hermenn 2251 íbúa, þar af 551 barn og 299 konur. Her- og lögreglumenn Hamasstjórnarinnar sem voru drepnir í þessari árás voru 789.

Hér má stoppa birtingu tölulegra uplýsinga, heildarmyndin er skýr – Palestínumenn hafa aldrei upplifað frið og öryggi.

Ræðum þá aðeins ástandið núna þegar búið er að skrúfa fyrir vatn og rafmagn til Gazabúa og einnig stöðva flutning á mat og eldsneyti til íbúanna sem oft hafa heyrt talað um frið og öryggi – jafnvel friðarviðræður. En aldrei kynnst því af eigin raun.

Og börnin á Gaza, sem eru 47% íbúanna, hafa aldrei upplifað einn einasta dag þar sem ekki vofði yfir sprengjuárás – eða að árásin var raunveruleg. Enda hafa tæplega 1000 börn verið drepinn á s.l. tíu árum. Og fjöldinn mun aukast á næstu dögum.

Setjum svo hér inn glænýja tilvitnun sem fjallar um frið og öryggi: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra Íslands „fordæmir árásir Hamas á Ísrael“ og segir „að ofbeldinu verði að linna. Fólk eigi rétt á friði og öryggi.“

Við nánari skoðun kemur í ljós að hugur hennar er helst hjá þeim sem hafa skapað ófriðinn og óöryggið. Börnin á Gaza eru afgangsstærð hjá stjórnmálafólki sem umgengst stjórnvöld í Ísraels sem jafningja í klúbbi hinna réttlátu – og segir að „þeir hafa rétt á að verja sig.“

Hjálmtýr Heiðdal er formaður Félagsins Ísland – Palestína

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu.

Skrá mig arrow_forward
Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí