Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
arrow_forward
Hvers vegna er Salka svona nútímaleg greining á kynferðisofbeldi?
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við …
arrow_forward
Sagði Marco Rubio nokkuð annað en JD Vance sagði í fyrra?
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.
Þættir
Helgi-spjall: Kristín Gunnlaugsarrow_forward
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður segir frá leit sinni frá Maríu mey að kvenmannssköpum og tröllskessum, frá óttanum í foreldrahúsum sem hefur fylgt henni, frá ást og skilnaði, trúarþörf og hættunni af að staðna.
Vikuskammtur: Vika 40arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Auður Jónsdóttir rithöfundur, Dagur Kári Pétursson kvikmyndaleikstjóri, Sara Stef. Hildar bókavörður og Sassa Eyþórsdóttir iðjuþjálfi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af gjaldþroti, stríði og litlum frið, átökum um stórt sem smátt en líka vonarglætum stórum og smáum.
Kynjafræði, leikhús. fjölmiðlaógn, Kína og klassíkinarrow_forward
Hanna Björg Viljhjálmsdóttir kynjafræðingur og Þorsteinn V. Einarsson kynjafræðingur ræða um bakslag og kynjafræði í skólum. Brynhildur Guðjónsdóttir leikstjóri og leikararnir Hildur Vala Baldursdóttir, Mikael Kaaber, Margrét Eir Hönnudóttir og Ernesto Camilo Valdes segja Gunnari Smára frá ást og sorg fólksins í Rauðu myllunni í París fyrir rúmri öld og hvers vegna sú saga á erindi við okkur í dag. Elva Ýr Gylfadóttir hjá Fjölmiðlanefnd ræðir ógnir og undirróður erlendra ríkja og hvers ber að gæta í heimi fjölmiðlanna í þeim efnum. Björn Þorláks ræðir við hana. Ragnar Baldursson stjórnmálafræðingur heldur áfram að segja okkur frá Kína í samtali við Gunnar Smára. Nú horfir hann á áhrif Konfúsíusar á kínverska menningu, stjórnmál og stöðu Kína í heiminum. Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfóníunnar og Elísabet Indra Ragnarsdóttir verkefnastjóri dagskrárgerðar í Hörpu ræða meðal annars Víking Heiðar og áhrif hans og fleiri frumkvöðla á tónlistina í spjalli við Gunnar Smára og tónlistarnemann Sól Björnsdóttur.
Trumptíminn, hampur, heimsmálin, Alþingi, ónæmiskerfið og söngurarrow_forward
Við ræðum ástandið í Bandaríkjunum á miðvikudögum við Rauða borðið. Þá er Trumptíminn. Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða nýjustu tíðindi úr landi Trump og hvaða áhrif þau munu hafa. Athafnakonan Tóta Jónsdóttir er frumkvöðull í hamprækt á Íslandi. Hún leiðir Maríu Lilju í allan sannleika um þessa mögnuðu, forboðnu jurt sem er til svo margra hluta nytsamleg. Við ræðum við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, ekki síst nýjustu vendingar Trump gagnvart Gaza og Úkraínu. Málþóf fékk falleinkunn á málþingi um starfshætti Alþingis. Að kalla úrræði til að stöðva eilífðarvél í ræðuflutningi kjarnorkuákvæði vekur aulahroll hjá lagaprófessor. Mörður Árnason fyrrum þingmaður og Indriði H Þorláksson, fyrrum skattstjóri ræða þingið í samtali við Björn Þorláks. Guðlaug María Bjarnadóttir og Súsanna Antonsdóttir halda fyrirlestur fyrir áhugasama um vanvirkni í ónæmiskerfi, sjúkdóm sem hrjáir fjölda fólks en fáir þekkja. Þær ræða við Maríu Lilju um heilsuna. Jóhann Helgason og Edda Borg koma að Rauða borðinu spjalla, spila og syngja í tilefni af nýrri sólóplötu Jóhanns og tónleikum með honum, Eddu og Gömmunum í Bæjarbíói.
Tilboð Trumps, Húsavík, loftlagsmál, dauðinn og sjóari sem málararrow_forward
Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur fer yfir tilboð Trump og Netanjahú um framtíð Gaza, forsögu þessa tilboðs sem byggt er á kröfum Ísraelsstjórnar, möguleika þess að það nái fram að ganga og viðbrögð stjórnvalda í Evrópu og í arabaríkjunum. Alvarlegt ástand gæti skapast á Húsavík eftir fall kísilvers PCC á Bakka. Einkennilegt andvaraleysi einkennir samtímann gagnvart dreifðum byggðum í landinu, segir Aðalsteinn Árni Baldursson, verkalýðsforingi á Húsavík í samtali við Björn Þorláks. Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar hjá HÍ og Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofunni ræða stöðu loftslagsmála, hvernig Ísland gæti bætt sig, losun og áhrif orðræðu í BNA þar sem Trump bannar viðurkennd hugtök tengd loftslagsmálum. Björn Þorláks ræðir við þau. Kristján Hreinsson, skerjafjarðarskáld ræðir nýja bók við Maríu Lilju. Bókin sem heitir: Einfaldar útfarir – allir velkomnir, Deyjandi hefðir fyrir lifandi fólk. Ingi Þór Hafdísarson stýrimaður, hárgeiðslumaður og listmálari ræðir við Gunnar Smára og sjómennsku, karlmennsku, uppreisnir og margt annað.
Ritlaun, sýklasótt, stöðugleikaregla, MÍR, sniðganga og veðurfræðiarrow_forward
Margrét Tryggvadóttir, rithöfundur og formaður Rithöfundasambandsins ræðir við Maríu Lilju um ritlaun en úthlutun þeirra hefur verið hávær í umræðu dagsins. Kristján Ingólfsson, eftirlaunamaður og fyrrum ráðgjafi segir Gunnari Smára frá fráfalli Eyglóar Svövu dóttur sinnar sem send var heim af bráðamóttöku þrátt fyrir að vera helsjúk af sýklasótt. Og Anna María Ingveldur Larsen mannfræðinemi segir jafnframt frá sambærilegri reynslu. Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga, útskýrir stöðugleikaregluna fyrir Gunnar Smára auk ýmissa annara reglna. Sigurður Þórðarson, fyrrum stýrimaður, verslunarmaður og félagi MíR til 50 ára. Boðar í samtali við Maríu Lilju aðalfund fyrir hönd gamalla félaga. Staðið hefur styr um félagið en nú er von á sáttum. Ingólfur Gíslason, lektor á menntavísindasviði HÍ skipuleggur ný skref í sniðgöngu vegna þjóðarmorðsins á Gaza. Björn Þorláks ræðir við Ingólf. Mun gervigreindin útrýma stétt veðurfræðinga í framtíðinni? Björn Þorláks ræðir við Sigga storm.
Helgi-spjall: Rúnar Guðbrandsarrow_forward
Rúnar Guðbrandsson leikari, leikstjóri og sviðslistamaður ræðir spennandi leikhús og minna spennandi, pólitíska list, trúnna á að við getum breytt heiminum, öryggi æskunnar og óróa unglingsáranna, föðurmissi og annað sem hefur mótað hann sem manneskju og listamann.
Vikuskammtur: Vika 39arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Árni Sveinsson kvikmyndaleikstjóri, Bjarki Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðingur, Saga Kjartansdóttir sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ og Þóra Elísabet Kjeld kennari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af dularfullum drónum, tárum á hvarmi, afsökunarbeiðni, vinnumansali, skoðanaskiptum og hótunum.
Réttur er settur, rauði þráðurinn, Taóismi og klassíkin rokkararrow_forward
Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir mannréttindi, Bókun 35, kynþáttamisrétti og fleira í samtali við Björn Þorláksson. Kolbeinn H. Stefánsson dósent í félagsráðgjöf ræðir við Gunnar Smára um vanda vinstrisins á Vesturlöndum og hér heima. Ragnar Baldursson Kínasérfræðingur heldur áfram að skýra fyrir Gunnari Smára hvernig taóisminn hefur mótað Kína, menningu og stjórnmál, og hugmyndir Kínverja um stöðu Kína í heiminum. Kristinn Sigmundsson bassi, Kolbeinn Ketilsson tenór og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari ræða um ljóðasöng við Gunnar Smára og tónlistarnemana Sóleyju Lóu Smáradóttur og Sól Björnsdóttur, um óperu, töfra tónlistar, kvíða fyrir tónleika, íslenska einsöngslagið og margt fleira.
Palestína, húsnæðiskrísa, Trump, taoismi og heyskapurarrow_forward
Þórdís Ingadóttir lagaprófessor ræðir við Gunnar Smára um gildi þess að fleiri lönd viðurkenna nú Palestínu, um hvort alþjóðalög og alþjóðakerfið sé að veikjast vegna stefnu Bandaríkjanna og hvaða skyldur íslensk stjórnvöld bera frammi fyrir þjóðarmorði á Gaza og öðrum glæpum Ísraelsstjórnar. Alvarleg staða er uppi í húsnæðismálum fjölmargra einstaklinga án þess að það fari hátt í samfélaginu. Fordómar eru miklir og harka í samfélaginu. María Pétursdóttir öryrki og myndlistarkona og Styrmir Hallsson, háskólanemi og ungur maður í leit að öruggu framtíðarhúsnæði, ræða ástandið með Birni Þorláks. Vorstjarnan heldur fund um málið annað kvöld. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um stefnubreytingu Trump gagnvart Úkraínu, sem hann segir nú að geti unnið stríð. Þeir fara líka yfir ræðu Trump í alsherjarþinginu, elta hana um víðan völl. Ragnar Baldursson Kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um Taoisma og áhrif hans á kínverska menningu, stefnu kínverska ríkisins og einnig um áhrif Taó á vestræna menningu. Þetta er fyrri hluti spjalls þeirra um Taóisma. Til marks um sprettusumarið sem nú er að baki eru dæmi um bændur á Norðurlandi sem slógu tún sín fjórum sinnum, sem er einsdæmi að sögn Trausta Þórissonar, bónda á Hofsá. Björn Þorláks slær á þráðinn norður.