Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
arrow_forward
Hvers vegna er Salka svona nútímaleg greining á kynferðisofbeldi?
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við …
arrow_forward
Sagði Marco Rubio nokkuð annað en JD Vance sagði í fyrra?
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.
Þættir
Húsnæði, brottvikning, börn með geðraskanir, óþekkti þingmaðurinn og bönnuð listarrow_forward
Á sama tíma og ungt fólk er í vanda að fjárfesta í húsnæði eru heldur fleiri íbúðir að koma á markað en verið hefur. Jónas Atli Gunnarsson hjá HMS ræðir við Björn Þorláksson. Matthías James Spencer Heimisson og Adrimir Selene Melo Fria eru hjón. Samt ætlar Útlendingastofnun að vísa Adrimir úr landi, en hún er ein þeirra fjölmörgu frá Venesúela sem hingað komu í boði stjórnvalda en nú er verið að vísa úr landi þegar dvalarleyfið rennur út. Gunnar Smári ræðir við hjónin. María Lilja ræðir þjónustu við börn með geðraskanir við þær Láru Ómarsdóttur, almannatengil og aðstandanda fíkils í bata, Diljá Ámundadóttur, varaþingmann, guðfræðinema og sálgæslukonu og Sigurþóru Bergsdóttir, varaþingmann, bæjarfulltrúa og stofnanda Bergsins Headspace. Kristján Þórður Snæbjarnarson segir Birni Þorláks frá persónulegum hliðum en Kristján er einn fjölmargra nýrra þingmanna. Óþekkti þingmaðurinn leitast við að kynna manneskjuna að baki þingmannsins. María Lilja fær til sín þau Snærós Sindradóttur, listfræðing og gallerista og Þránd Þórarinsson, myndlistarmann sem þekktur er fyrir hápólitísk málverk sín. Þau ræða saman um list og pólitík.
Húsnæðiskrísa, ungmennadrykkja, deilur í vinstrinu og fiðluæði Þingeyingaarrow_forward
Kristín Heba Gísladóttir hjá Vörðu segir suma hópa í samfélaginu eiga afar erfitt með að koma sér upp öruggu þaki yfir fjölskyldur. Horfur ungs fólks til að eignast húsnæði virðast velta mjög á efnahag foreldra að óbreyttu. Björn Þorláksson ræðir við Kristínu Hebu. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur í London fer yfir deilur innan nýja vinstri flokksins í Bretlandi. Hvað gengur þingmönnum til sem vilja lækka áfengiskaupaaldur niður í 18 ár hér á landi? Er óöld í uppsiglingu? Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi ræðir við Björn Þorláks og reynir að svara áleitnum spurningum. Algjör sérstaða var meðal Þingeyinga til forna er kom að fiðlueign og fiðluspili. Tónlistin skipaði svo veigamikinn sess að fá dæmi eru um annað eins í dreifðum byggðum landsins. Herdís Anna Jónsdóttir, víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, ræðir málin við Björn Þorláks.
Helgi-spjall: Anna Rúnarrow_forward
Anna Rún Tryggvadóttir myndlistarkona segir okkur frá hugmyndum sínum og lífi, leit sinni að röddinni og haldi í lífinu, kyrrðinni hjá ömmu, rótinu við skilnað og átökunum í listinni.
Vikuskammtur: Vika 38arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Esther Bíbí Ásgeirsdóttir bassaleikari, Símon Birgisson leiklistargagnrýnandi, Svala Magnea Ásdísardóttir kennari og Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndagerðarkona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af þöggun og hefndum, stríði og morðum, deilum og fögrum fyrirheitum.
Olíuleit, hervæðing Kína, fátækt fólk, erlendir nemar og ferðaþjónustaarrow_forward
Björg Eva Erlendsdóttir hjá Landvernd ræðir “bull” og stolin hugtök í umræðu um leit að olíu og gasi á Drekasvæðinu. Björn Þorláks ræðir við hana. Gunnar Smári ræðir við Ragnar Baldursson stjórnmálafræðing um herstyrk Kína og hvernig stjórnvöld þar meta hraða uppbyggingu hersins og hátæknilega hergagnaframleiðslu. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Guðnýju Helenu Guðjónsdóttur, félagsráðgjafa hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og Ástu Aðalsteinsdóttur, öryrkja og einstæða móður. Maria Lilja fór og ræddi við stúdentahreyfingu nema af erl uppruna við Háskóla Íslands en greint hefur verið frá þvi að stór hópur sem hugði á nám þessa önn, komin hingað frá löndum utan Evrópu séu nú föst í bjúrókrasíu milli Háskólans og UTL. Rasismi og mannréttindabrot myndu sumir segja. Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri ræðir þá stöðu sem gæti komið upp ef flugferðir Play til og frá landsins leggjast af. Hann segir að áhrifin yrðu engan veginn nálægt þeim sem skala sem varð þegar Wow fór á hausinn. Björn Þorláks ræðir við Arnar Má um þetta mál og fleira sem tengist greininni.
Niðurskurður, RÚV, fæðingartíðni, Lína og öfga kristniarrow_forward
Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Halla Gunnarsdóttir formaður VR ræða við Gunnar Smára um gagnrýni verkalýðshreyfingarinnar á fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Fréttaflutningur Ríkisútvarpsins af Gaza mun nú breytast frá því sem verið hefur í samræmi við viðurkennt þjóðarmorð Ísraela samkvæmt undirstofnun Sameinuðu þjóðanna að sögn útvarpsstjóra. Björn Þorláks ræðir við Stefán Eiríksson á gagnrýnum nótum. Ásdís A. Arnalds, lektor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, Ari Klængur Jónsson, verkefnisstjóri við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og Sunna Símonardóttir, lektor við Háskólann á Akureyri ræða við Gunnar Smára um lækkandi fæðingartíðni, valið barnleysi og áhrif ríkisvaldsins á barneignarvilja. Gunnar Smári ræðir við stelpur á aldri við Línu langsokk um hver Lína er og hvaða erindi hún á við samtímann. Jónína María Jónsdóttir, Mía Snæfríður Ólafsdóttir, Ingibjörg Lóa Auðar Héðinsdóttir, Silfa Dögg Unnardóttir Einarsdóttir og Mía Þórhildur Bragadóttir mæta að Rauða borðinu og ræða það sem mestu skiptir í frelsisbaráttu barna. Skúli S. Ólafsson prestur í Neskirkju og Bjarni Randver Sigurvinsson trúar- og guðfræðingur ræða við Gunnar Smára um kristnina sem voru grundvöllur hugmyndabaráttu Charlie Kirk og er öflugt politískt afl í Bandaríkjunum.
Seðlabankastjóri, forystumaður, Konukot, 30 fyrir 30 og öryggismálarrow_forward
Björn Leví Gunnarsson pírati mætir til Björns Þorlákssonar og ræðir kosti seðlabankastjóra í stöðunni sem nú er komin upp í seðlabankanum. Getur ástarsamband embættismanns varðað hagsmuni heillar þjóðar? Við fáum svörin við því hér rétt á eftir. Fyrst auglýsingar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir í samtali við Gunnar Smári áherslur þingmanna hóps um öryggisstefnu Íslands og klofning innan Nató. Halldóra R. Guðmundsdóttir forstöðukona Konukots ræðir við Maríu Lilju um kæru sem barst byggingarfulltrúa Reykjavíkur frá líftæknifyrirtæki vegna fyrirhugaðrar opnunar Konukots á nýjum stað í Ármúla. Kallað er eftir aðgerðum því til til leiðar að náttúruvernd nái til 30 prósent hafsvæðis fyrir árið 2030. Þau; Sigrún Perla Gísladóttir, Valgerður Árnadóttir, Stefán Jón Hafstein eru öll í forsvari fyrir náttúruna með sínum hætti hingað komin á degi íslenskrar náttúru sem jafnframt er afmælisdagur Ómars Ragnarssonar. Þá verður jafnframt að loknu náttúru-spjalli frumsýnt í sjónvarpi, hér á Samstöðinni myndband sem unnið var sérstaklega til kynningar á verkefni þessu: 30 fyrir 30. Jóhannes Óli Sveinsson hefur verið kjörinn nýr formaður ungra jafnaðarmanna. Hann spjallar við Björn Þorláks.
Erlendir fangar, mótmæli í London, nýr þingmaður, verkfall og friðaraktivismiarrow_forward
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, lögmaður og formaður Siðmenntar ræða Mohammed Kourani og málefni erlendra fanga í íslensku fangelsismálakerfi almennt við Maríu Lilju. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur og fréttaritari Samstöðvarinnar í London segir Gunnari Smára frá mótmælum helgarinnar þegar stórir hópar manna kröfðust breytinga á innflytjendastefnu stjórnvalda. Sigurður Helgi Pálmason þingmaður Flokks fólksins, segir frá lífi sínu í persónulegu spjalli við Björn Þorláks. Meiri líkur en minni eru að óbreyttu á verkfalli hjá langstærstum hluta starfsmanna Fjarðaáls fyrir vestan, álverksmiðju Alcoa. Atkvæðagreiðsla um verkfallið hófst í dag. Hjördís Þórs Sigurþórsdóttir verkalýðsleiðtogi hjá Afli fer yfir stöðuna með Birni Þorláks. Rannsókn er að hefjast á friðaraktívisma hér á landi. Guðrún Sif Friðriksdóttir sem starfar í Reykjavíkurakademíunni ræðir við Björn Þorláks.
Helgi-spjall: Helen Ólafsdóttirarrow_forward
Helen María Ólafsdóttir öryggissérfræðingur segir okkur frá vondum stöðum sem hún hefur ratað á, góðu fólki og sterkri fjölskyldu, stríðsátökum, hvernig mannskepnan bregst við gagnvart hryllingi, ástinni og voninni um að heimurinn skáni.
Vikuskammtur: Vika 37arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur, Freyr Eyjolfsson öskukarl, Ragnar Þór Pétursson kennari og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af menningarstríði og þjóðarmorði, þingsetningu og voðaverkum, ógn, átökum og litlum friðarvilja.