Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
arrow_forward
Hvers vegna er Salka svona nútímaleg greining á kynferðisofbeldi?
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við …
arrow_forward
Sagði Marco Rubio nokkuð annað en JD Vance sagði í fyrra?
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.
Þættir
Úkraína, þjóðarmorð, transfréttir, Austur-Asía og grasalækningararrow_forward
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir fund þjóðarleiðtoga í Washington við Gunnar Smára. Erum við nær friðarsamningum eða kannski jafn fjarri þeim og hingað til? Guðný Gústafsdóttir starfsmaður Félagsvísindastofnunar, Ólafur Ingólfsson jarðfræðingur og Hjálmtýr Heiðdal kvikmyndagerðarmaður ræða við Gunnar Smára um skyldur almennra borgara gagnvart þjóðarmorði. Arna Magnea Danks segir Maríu Lilju transfréttir og fréttir af annarri mannréttindabaráttu í háskalegum heimi. Jón Egill Eyþórsson doktorsnemi í kínverskri heimspeki og sjálfstætt starfandi fræðimaður ræðir við Gunnar Smára um Kína, Kóreu og Japan. Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir og Ingibjörg Birna Ólafsdóttir viðskiptafræðingur segja Gunnari Smára frá Lífgrösum, grasalækningum, þróunarhjálp og mætti kvenna.
Strokulaxar, pólitíkin, rauði þráðurinn, strætó og Emmsjé Gautiarrow_forward
Jóhannes Sturlaugsson, líffræðingur og rannsóknarmaður hjá Laxfiskum ræðir við Maríu Lilju um eldislax í Haukadalsá, ónýta stjórnsýslu og náttúruvána sem vofir yfir vegna skorts á eftirliti með fjársterkum aðilum í sjókvíaeldi. Ólafur Þ. Harðarson prófessor heldur áfram yfirferð sinni yfir stöðu stjórnmálaflokkanna í lok sumars. Sigurjón Magnús ræðir við hann. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar fer yfir stöðu stéttarbaráttunnar, sósíalismans og vinstrisins í okkar heimshluta í samtali við Gunnar Smára. Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar, Laufey Líndal Ólafsdóttir plötusnúður og Hildur Embla Ragnheiðardóttir stuðningsfulltrúi nota strætó og ræða þá reynslu við Maríu Lilju. Gauti Þeyr Másson betur þekktur sem Emmsjé Gauti ræðir við Maríu Lilju um nýja plötu, rasisma, líf listamannsins og baráttu snemm-miðaldra rappara við sjálfið.
Helgi-spjall: Snærós Sindradóttirarrow_forward
Snærós Sindradóttir, listfræðingur og fjölmiðlakona ræðir við Maríu Lilju um lífið og tilveruna, pólitík, VG, menningarverðmæti, erfitt fólk, sjálfið, stíl og elegans, vinalegt hægrafólk og hefnd nördanna í skemmtilegu og einlægu samtali.
Vikuskammtur: Vika 33arrow_forward
Í vikuskammt föstudaginn 15. ágúst mæta til Maríu Lilju þau Ása Lind Finnbogadóttir kennari og plötusnúður, Helga Ögmundar mannfræðingur, María Pétursdóttir myndlistarkona og Alexandra Briem borgarfulltrúi Pírata. Þau fara yfir fréttir vikunnar sem voru meðal annars fundur Trump og Pútín, Gaza, Lax, plastmengun, biluð tæki á landspítala, bílastæði, ljósmyndir á Facebook, veggjalús, menning og allskonar fleira.
Málfrelsi & þjóðarmorð, Alaskafundur, ESB & eldislax, heilbrigðiskerfið og drykkja ungmennaarrow_forward
Ingólfur Gíslason lektor við menntavísindasvið mótmælti fyrirlestri ísraelsk prófessors í Þjóðminjasafninu og hefur verið gagnrýndur fyrir það bæði úr háskólasamfélaginu og frá stuðningsmönnum Ísraelshers. Gunnar Smári ræðir við hann um þjóðarmorðið, málfrelsi, akademískt frelsi og borgaralega skyldu gagnvart þjóðarmorði. Gunnar Smári ræðir líka við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um fund Pútín og Trump á morgun. Er fundurinn þegar sigur fyrir Pútin, er engin góð niðurstaða fyrir Trump og hvað vill Evrópa og Úkraína? María Lilja spyr almenning um afstöðu hans til umsóknar Íslands um aðild að ESB og strandeldis. Ragnheiður Davíðsdóttir tekur við Ólaf Sigurðsson, faðir uppkomins einhverfs/geðfatlaðs manns, en Ólafur hefur barist við kerfið í mörg ár til að fá þjónustu fyrir son sinn. Katrín Ella Jónsdóttir sálfræðingur og fagstjóri sálfélagslegu meðferðarinnar á Vogi ræðir vanda ungra notenda. Því yngri sem við erum þegar við hefjum neyslu alkóhóls því meiri líkur eru á vanda. Björn Þorláks ræðir við Katrínu.
Reynsluboltar, neytendur, unglingadrykkja og Kínaarrow_forward
Una Margrét Jónsdóttir, Hörður Torfason og Kristín Ástgeirsdóttir eru gestir Sigurjóns Magnúsar í umræðu reynsluboltanna um fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum ræðir baráttumál íslenskra neytenda með Birni Þorláks. Unglingadrykkja hefur stóraukist seinni ár. Björn Þorláks ræðir við Hörpu Henrysdóttur kennara. Gunnar Smári heldur áfram samtali sínu við Ragnar Baldursson samanburðarstjórnmálafræðing um íina, samfélagið þar og stjórnkerfi, og stöðu Kína í breyttum heimi.
Lög og réttur, Kína, grunnskóli og tollararrow_forward
Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lögfræðileg álitamál sem oftast tengjast fréttum líðandi stundar. Sauðfé sem bítur blóm í kirkjugörðum og Reynisfjara meðal umfjöllunarefna. Björn Þorláks ræðir við Gísla. Ragnar Baldursson samanburðarstjórnmálafræðingur hefur búið í Kína í 25 ár af síðustu fimmtíu árum. Gunnar Smári ræðir við hann um ris Kína, kínverskt samfélag, stjórnmál og menningu. Meðvirkni og metnaðarleysi ríkin innan grunnskólakerfisins í sumum skólum og gagnast engum að þegja og láta vandann hlaða utan á sig frá degi til dags heldur þvert á móti. Þetta segir Arnar Ævarsson kennslufræðingur í samtali við Björn Þorláks. Þorvaldur Gylfason prófessor ræðir við Gunnar Smára um áhrif tollastefnu Trump á efnahags Bandaríkjanna og heimshagkerfið, en líka áhrifin á pólitíkina heima fyrir og erlendis.
Palestína, pólitík, brennivín & sport, ESB og danslög við fiðluarrow_forward
Qussay Oddeh, íslenskur Palestínumaður, ræðir við Gunnar Smára um ástandið í Palestínu. Sem hefur aldrei verið verra. Ólafur Þ. Harðarson og Eva H. Önnudóttir prófessorar í stjórnmálafræði ræða við Björn Þorláks um stöðu ríkisstjórnarinnar, stjórnarandstöðu og gat í hinu pólitíska litrófi. Markaðsöflin vilja normalisera drykkju á íþróttaviðburðum segir Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Er Íslandi betur borgið í ESB eða utan? Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Ágúst Ólafur Ágústsson aðstoðarmaður borgarstjóra og Erna Bjarnadóttir hagfræðingur hjá Bændasamtökunum kryfja málin með Birni Þorláks. Atli Freyr Hjaltason, þjóðfræðingur ræðir við Maríu Lilju um útgáfu Danslaga fyrir fiðlu, gleymd menningarverðmæti Jónasar Helgasonar.
Helgi-spjall: Hilmir Snærarrow_forward
Hilmir Snær Guðnason leikari segir frá sér, æskunni, leikhúsinu, listinni, drykkju, sigrum, háska og hamingju.
Vikuskammtur: Vika 32arrow_forward
Í vikuskammtinn að þessu sinni koma þau Tótla I. Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla, Jakob Frímann Magnússon Stuðmaður og varaþingmaður Miðflokksins, Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og formaður velferðarráðs og ræða fréttir vikunnar við Maríu Lilju. Það var ýmislegt sem gekk á innan lands sem utan en hæst ber að nefna Tolla, Gaza, Trump, óánægju með ferðamannaiðnaðinn, bréfaskriftir sakborninga í gæsluvarðhaldi, hinsegindagar, dvalarleyfi og deilur Verkalýðsforingja, fjúkandi Þjóðhátíðargestir og allskonar fleira.