Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
arrow_forward
Hvers vegna er Salka svona nútímaleg greining á kynferðisofbeldi?
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við …
arrow_forward
Sagði Marco Rubio nokkuð annað en JD Vance sagði í fyrra?
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.
Þættir
Helgi-spjall: Guðrún Jónsdóttirarrow_forward
Guðrún Jónsdóttir, fyrrum talskona Stígamóta, fagnar dómi mannréttindadómstólsins og lýsir baráttunni á bak við þann sigur, segir frá æsku sinni og uppruna, foreldrum sínum og hvaða áhrif þeir höfðu á líf hennar og persónuleika, dásemd þriðja æviskeiðsins og hvernig þeim lyndir saman, náttúrubarninu og baráttukonunni sem búa saman innra með Guðrúnu.
Vikuskammtur: Vika 35arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Bergsteinn Sigurðsson sjónvarpsmaður, Eva Bjarnadóttir teymisstjóri innanlandsdeildar UNICEF, Greipur Gíslason ráðgjafi og stjórnandi Tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið og Ragnheiður Guðmundsdóttir stjórnmálafræðingur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af sigrum í mannréttindabaráttu, glæpamálum, háum vöxtum, hjaðnandi verðbólgu, stríð og engum friði.
Umhverfisvernd, eldri borgarar, hatursorðræða og málsmeðferð kynferðisbrota arrow_forward
Árni Finnsson, Náttúruverndarsamtökum Íslands, Kristín Vala jarðfræðingur og Björg Eva Erlendsdóttir hjá Landvernd segja að innan stjórnmálanna virðist náttúru- og umhverfisvernd eiga sér fáa málsvara þessa dagana. Björn Þorláks ræðir við þau. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Guðbjörgu Hjaltadóttur hjúkrunarfræðing og aðstandanda um vanda eldri borgara við að fá hjúkrunarrými. Arna Magnea Danks, kennari og aktívisti varar við málflutningi Snorra Mássonar sem hún segir ala á fordómum. Björn Þorláksson ræðir við Örnu. Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar ræðir við Maríu Lilju um nýfallinn dóm MDE og hvaða áhrif hann kann að hafa á þolendur kynferðisofbeldis hér á landi sem lengi hafa óskað eftir réttarbótum í málaflokkinn.
Vindorka, þágufallssýki, Indland og Kína, Reynsluboltar, spekileki og maturarrow_forward
Ráðherra orkumála sagði á fundi í vikunni að engar bindandi ákvarðanir yrðu teknar um vindorku fyrr en skýr lagarammi lægi fyrir, þetta er þvert á upplifun fólksins í sveitinni. Thelma Harðardóttir, sveitastjórnarfulltrúi í Borgarbyggð ræðir við Maríu Lilju sem síðan brá sér úr húsi með Pétri tökumanni til að ræða við fólk við Háskóla Íslands um þágufallssýki. Gunnar Smári fékk til sín Ragnar Baldursson stjórnmálafræðing og sérfræðing í málefnum Kína til að ræða áhrif ofurtolla Trump á Indland og samskipti Indverja og Kínverja. Reynsluboltarnir að þessu sinni eru þau Guðbrandur Stígur, Helga Þórðardóttir og Karl Garðarsson og ræða þau samfélagið og málefni líðandi stundar við Sigurjón Magnús Egilsson. Spekileki á milli landshluta er áhyggjuefni að sögn Aðalbjörns Jóhannssonar, nema á Akureyri. Hann ræðir framtíð Háskólans á Akureyri við Björn Þorláks. Eirný Sigurðardóttir ostasérfræðingur og Friðrik V. Hraunfjörð kokkur setjast til borðs með Gunnari Smára og ræða um allskonar mat.
Lög, innflytjendur, skólamál, forsetaframboð og rauði þráðurinnarrow_forward
Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagalegt mikilvægi nýfallins dóms þar sem kona sem varð fyrir ofbeldi hafði betur gegn íslenska ríkinu hjá Mannréttindastól Evrópu. Ekki dugar eitt og sér að bera við skorti á fjármunum eða mannafla ef rannsókn mála er ábótavant. Sabine Lespkof ræðir við Maríu Lilju um mýtuna sem felst í orðræðu hægrisins af hættulega útlendingnum, flóttamanninum sem kominn er til að breyta vestrinu til hins verra og mergsjúga velferðarkerfin. Atli Harðarson prófessor við menntavísindasvið ræðir skólamál við Gunnar Smára, um hástemmda námskrá sem engin leið er fyrir skólana að uppfylla og auglýsingamennsku kringum framhaldsskóla. Fulltrúar valdaflokkanna sóttu fast að Katrín Jakobsdóttir yrði forseti Íslands vegna þess að hún var talin fulltrúi kerfisins og myndi engum bátum rugga. Arnar Þór Jónsson ljóstrar þessu upp í uppgjörsviðtali við Björn Þorláksson. Bjarki Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðingur og fyrrum aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandsson ræðir við Gunnar Smára um stéttabaráttuna, vinstrið og sósíalismann.
Blaðamannamorð, hávaxtastefnan, menntamál, Gunnar blaðasali og maraþonarrow_forward
Við hefjum leik á samtali Maríu Lilju við formann Blaðamannafélagsins. Sigríður Dögg Auðunsdóttir erslegin yfir þeim hörmungum sem blaðamenn á Gaza þurfa að þola. Hún segir löngu orðið ljóst að sannleikurinn sé orðinn að skotmarki Ísraelsmanna á Gaza. Halla Gunnarsdóttir formaður VR ræðir við Gunnar Smára um hávaxtastefnu Seðlabankans og niðurskurðarstefnu ríkisstjórnarinnar sem saman grafa undan lífskjörum almennings, einkum ungs fólks. Aukið áhyggjuefni í grunnskólum borgarinnar er hve nemendahópur er skiptur eftir hverfum. Þetta segir Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla. Hann ræðir ýmsar áskoranir menntamála og jöfnuð. Gunnar Gunnarsson var lengi kunnur blaðasali í borginni. Hann glímir við fötlun sem lýsir sér helst í því að hann á erfitt með að tjá sig og fólk á erfitt með að skilja hann. En á bak við þessa fötlun býr frjór hugur sem fylgist vel með og hefur skoðanir á mörgu. Gunnar Smári ræðir við nafna sinn. Mikið hefur verið rætt um ensku- og íslenskukunnáttu menntamálaráðherra undanfarið. Hvað er uppbyggilegt í þeirri umræðu og hvað gæti verið pólitísk atlaga – eða valdbeiting? Eiríkur Rögnvaldsson ræðir málin. Við endum þáttinn á því að heyra í þremur ungum hlaupurum sem þreyttu frumraun sína í Reykjavíkurmaraþoninu um helgina. Þeir eru Kári Hlíðberg, Kári Baldursson og Starkaður Björnsson.
Helgi-spjall: Jón Kalmanarrow_forward
Jón Kalman Stefánsson rithöfundur sest við Rauða borðið og leyfir hlustendum að kynnast sér og spegla sig í sér, uppruna, uppvexti og leit hans að sjálfum sér sem höfundi og manneskju.
Vikuskammtur: Vika 34arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Björg Magnúsdóttir fjölmiðlakona, Kristín S. Bjarnadóttir, stofnandi Vonarbrúar, Natalie G Gunnarsdóttir nemi og Sindri Freysson rithöfundur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af stríði en litlum friði, átökum en kannski fáum lausnum, vonum sem risu og hnigu, væntingum sem gengu sumar eftir.
Gaza, Vonarbrú, mænuskaði, konur og örorka og gervigreindarrow_forward
María Lilja ræðir við Katrínu Harðardóttur, þýðanda, um ástandið á Gaza í ljósi nýjustu fregna af þjóðarmorðinu. Katrín er í daglegum samskiptum við einstaklinga í austanverðri Gazaborg hvar ástandið tók að versna og árásum fjölga sem aldrei fyrr í morgun. Fólkið hennar á svæðinu tók upp stutt myndskeið af aðstæðum. Þá fáum við Hlyn Má Ragnheiðarson, nema og sjálfboðaliða til að segja okkur hvernig einstaklingar á Íslandi geta auðveldlega borið sig að við að styðja fólkið á Gaza. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Auði Guðjónsdóttur, móðir ungrar konu sem lenti í alvarlegu umferðarslysi árið 1988, um áhrif slyssins og afleiðinga þess á líf fjölskyldunnar. Þórdís Bjarnleifsdóttir, félagsráðgjafi og öryrki ræðir skýrslu félagsvísindastofnunar sem kynnt var í gær um örorkulífeyrisþega. Í ljós kom að konur á miðjum aldri. Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um gervigreind og hvaða áhrif hún getur haft á vitund okkar, heimsmynd og sjálfsmynd.
Vextir, námslán, reynsluboltar, skógareldar og rauði þráðurinnarrow_forward
Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins ræðir við Gunnar Smára um verðbólgu, vexti og kjarasamninga í tilefni af vaxtaákvörðun Seðlabankans. María Lilja spyr almenning hvort vextir séu of háir á Íslandi. Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseta Landssamtaka íslenskra stúdenta, ræðir við Gunnar Smára um námslánakerfið, sem virkar illa eða alls ekki; styrkir ekki jafnrétti til náms og veldur mikilli atvinnuþátttöku stúdenta og þar með minna tíma til náms. Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur, Þórunn Sigurðardóttir menningarfrömuður og Oddný Harðardóttir fyrrverandi fjármálaráðherra fara yfir stöðu mála með Sigurjóni Magnúsi. Kristófer Alex Guðmundsson, talar við Maríu Lilju frá Madrid hvar eldar og miklir hitar hafa mikil áhrif í líf borgaranna. Þau ræddu um tíða skógarelda, viðbrögð almennings og stjórnvalda, vatnsbirgðir, tengingu eldsumbrota við sólarsellur og fleira. Kári Gautason, sjálfstætt starfandi ráðgjafi og fyrrum aðstoðarmaður Svandísar Svavarsdóttur ræður um stéttabaráttu, vinstrið og sósíalismans á okkar tímum. Þetta er hluti af syrpunni um rauða þráðinn, þar sem Gunnar Smári ræðir við fólk um stöðu vinstrisins.