Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreind

Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreindarrow_forward

S06 E083 — 05/28/2025

Haraldur Þorleifsson frumkvöðull og tónlistarmaður, Arna Grét­ars­dótt­ir, sókn­ar­prest­ur í Reyni­valla­prestakalli, Bjarni Karlsson, prestur og guðfræðingur hjá sálgæslu- og sálfræðistofunni Haf, ræða við Gunnar Smára um mál Oscars And­ers Florez Bocanegra, 17 ára drengs frá Kólumbíu. Og um hlutverk borgara þegar stjórnvöld brjóta gegn siðferðiskennd þeirra. Inger Erla Thomsen, sérfræðingur í málsvarastarfi UNICEF á Íslandi og Eva Bjarnadóttir, teymisstjóri innanlandsdeildar UNICEF ræða lífshamingju barna við Maríu Lilju. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um stuðning stjórnvalda í Evrópu við þjóðarmorðið í Gaza og hvort von sé til þess að almenningi takist að breyta þeirri afstöðu. Natasha S. ljóðskáld ræðir um Rússland við Gunnar Smára, vanda þess að vera Rússi á Íslandi og hvernig það er að koma til móðurlandsins í skugga innrásar Pútins í Úkraínu. Blaðamannafélagið kynnti á félagsfundi í gærkvöld nýjar lausnir er varða framtíð fjölmiðla og blaðamennsku. Meðal hugmynda er að tekjur af auglýsingasölu Rúv renni til einkarekinna miðla. Ritstjórnarfulltrúar Samstöðvarinnar, þeir Gunnar Smári Egilsson og Björn Þorláks, ræða hvort lausnirnar séu raunhæfar. Björgmundur Örn Guðmundsson, ráðgjafi í nýsköpun ræðir femínskan vinkil á innleiðingu gervigreindar á vinnumarkaði við Maríu Lilju.

Lýðræði. list og gervigreind, ölæði, Landbúnaðarháskólinn og náttúruvefur

Lýðræði. list og gervigreind, ölæði, Landbúnaðarháskólinn og náttúruvefurarrow_forward

S06 E082 — 05/27/2025

Valur Ingimundarson sagnfræðingur og Jón Ólafsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára um lýðræðið í austustu Evrópu og lýðræðisþróun í okkar heimshluta. Trump ber á góma ásamt hinum ýmsu Evrópuleiðtogum í bland við stríð, pólitík og uppgang fasisma. Hlynur Helgason, myndlistarmaður, dósent i listfræði HÍ og varaformaður Sambands íslenskra myndlistarmanna ræðir um gervigreind, myndlist, falsanir og höfundarrétt við Oddnýju Eir. Margt bendir til þess að fjárhagsleg afkoma íþróttafélaga ráði för þegar áfengi er selt á viðburðum í kringum börn. Spurt er hvort vegi þyngra, fjármál eða lýðheilsa barna. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi segir áfengismenninguna út úr kú. Björn Þorláks ræðir við hann. Christian Schultze, umhverfisskipulagsfræðingur og landslagsarkitekt, sviðsstjóri rannsókna- og alþjóðamála í Landbúnaðarháskóla Íslands kemur þar á eftir til Oddnýjar Eirar og segir okkur frá alþjóðasamstarfi og nýjustu verkefnum og ræðir mikilvægi öflugs rannsóknarumhverfis á sviði landbúnaðar á nýjum tímum. Sólrún Harðardóttir, kennari og námsefnishöfundur lokar svo samtali kvöldsins einnig með Oddnýju og ræðir við hana um nýjan náttúruvef fyrir borgarbörn og önnur náttúrubörn.

Samstöðin, mótmæli, aðildarumsókn, Þokkabót og Akureyrar-cóvíd

Samstöðin, mótmæli, aðildarumsókn, Þokkabót og Akureyrar-cóvídarrow_forward

S06 E081 — 05/26/2025

Við hefjum Rauða borðið á smá spjalli um stöðu Samstöðvarinnar og kynnum síðan dagskrá kvöldsins. Við byrjum á því að fara niðrí bæ á mótmæli. María Lilja og Oddný Eir ræddu við fólk sem kom til að mótmæla brottvísun Oscars Andres Flor­ez Boca­negra. Þær hittu fyrir þjóðþekkt andlit og önnur minna þekkt, fólk sem er vant að mótmæla og aðra sem eru að uppgötva samtakamáttinn. Gunnar Smári ræðir því næst við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um mögulega aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, um muninn á krónu- og evruhagkerfinu. Og svo ræða þeir um síðustu skeyti Trump og afstöðu John Bolton, fyrrum öryggisráðgjafa, til stöðu Íslands gagnvart Bandaríkjunum. Í tímaritinu Súlur hefur birst ný grein eftir Grétar Þór Eyþórsson prófessor á Akureyri um covid-tímann á Akureyri. Grétar ræðir rannsóknina að baki þeirri grein í samtali við Björn Þorláks sem og hallarbyltingu sósíalista. Hljómsveitin Þokkabót er komin á kreik á ný en Íslendingar kannast vel við smelli fortíðar úr smiðju hljómsveitarinnar líkt og Litlir kassar. Þeir Lárus Halldór Grímsson, Ingólfur Steinsson og Halldór Gunnarsson ræða við Björn Þorláks um pólitíska texta, listina að hlusta – og margt fleira.

Helgi-spjall: Ásdís Thoroddsen  

Helgi-spjall: Ásdís Thoroddsen  arrow_forward

S06 E080 — 05/24/2025

Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður segir Oddnýju Eir frá lífi sínu og list

Vikuskammtur: Vika 21

Vikuskammtur: Vika 21arrow_forward

S06 E079 — 05/23/2025

Í Vikuskammtinum að þessu sinni koma að Rauða borðinu ásamt Maríu Lillju þau Guðmundur Ingi Þóroddsson, Formaður Afstöðu félags fanga. Svala Jóhannesardóttir, formaður Matthildarsamtakanna um skaðaminnkun, Sanna Magdalena Mörtudóttir, leiðtogi Sósíalista og formaður velferðarráðs Reykjavíkur og Pétur Eggerz, tæknistjóri og aðgerðasinni. Það hefur margt gengið á innanlands sem utan en hæst ber að nefna margt varðandi Gaza, mótmæli, málþing, rasisma, hnífstungu og mannskæðan bruna. Þá mælti heilbrigðisráðherra fyrir frumvarpi sem segir nikótínpúðum stríð á hendur, Trump lét gamminn geysa um hin ýmsu mál, úttekt Viðskiptaráðs um kostnað ríkis og bæja vegna latra starfsmanna vakti hörð viðbrögð, búvörulögin voru staðfest af Hæstarétti og Perlan seldist. Þá heyrum við jafnan hvað gestir okkar aðhöfðust í vikunni sem leið en þau eru öll sérstaklega iðin við baráttuna fyrir betra samfélagi.

Sérhagsmunapot, fangar, geggjuð dagskrá, Gaza og frumlegur listamaður

Sérhagsmunapot, fangar, geggjuð dagskrá, Gaza og frumlegur listamaðurarrow_forward

S06 E078 — 05/22/2025

Við hefjum leik við Rauða borðið á viðtali við framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, Ólaf Stephensen. Hann er stóryrtur eftir dóm Hæstaréttar í búvörulagafrumvarpinu og segist hissa á ástandinu í hans gamla flokki, Sjálfstæðisflokknum.  Fréttir af Gaza verða sagðar við Rauða borðið. Magga Stína var áberandi í fjölmiðlum í gær og hún vaknaði við holskeflu af viðbjóðslegum skilaboðum. Hún ræðir við Maríu Lilju um fréttir af Gaza, áreitið og ofbeldið sem aktívistar verða fyrir, fyrir það eitt að standa gegn barnamorðum. María Lilja mætti á stórmerka ráðstefnu sem Afstaða, félags fanga blés til í tilefni af 20 ára afmæli félagsins. Hún tók nokkra þátttakendur tali. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir Oddnýju Eir Ævarsdóttur allt að frétta frá geggjað góðri dagskrá um geðheilbrigðismál um síðustu helgi. Við endum þáttinn í kvöld úti á landi. Egill Logi Jónasson, listamannsnafn hans er Drengurinn fengurinn, er nýr bæjarlistamaður á Akureyri og ræðir í samtali við Björn Þorláks kúnstina að vera til og það sturlaða plan að reyna að þrífast og lifa á listinni.

Gaza, Reynsluboltar, misskipting, Nigel Farage, arkítektúr, Færeyjar og bridge

Gaza, Reynsluboltar, misskipting, Nigel Farage, arkítektúr, Færeyjar og bridgearrow_forward

S06 E077 — 05/21/2025

Í byrjun þáttar fer María Lilja yfir það helsta sem er að frétta af þjóðarmorðinu á Gaza. Reysluboltar Sigurjóns M eru á sínum stað. Þau Hörður TorfasonRagnheiður Davíðsdóttir Drífa Sigfúsdóttir ræða ýmis hitamál. Vaxtalækkun Seðlabankans mun ekki endilega gera hlutskipti leigjenda bærilegra, dæmi eru um hið gagnstæða. Þetta segir Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna. Hann ræðir húsnæðismálin og pólitískt stefnumót sósíalista um næstu helgi ásamt Sönnu Magdalenu Mörtudóttur borgarfulltrúa. Björn Þorláks ræðir við þau. Gunnar Smári hringir til London og ræðir við Guðmund Auðunsson hagfræðing um bresk stjórnmál, einkum ensk, og ekki síst um hvaða fyrirbrigði Umbótaflokkur Nigel Farage er. Mikið vantar á að hugað sé að tilhlýðilegum lífsgæðum íbúa er kemur að húsbyggingum síðustu ára – þéttingarstefnan bitnar á ljósi og hljóði og spyrna þarf við fótum með róttækum hætti ekki seinna en strax. Þetta kemur fram í eldsnörpu og gagnrýnu spjalli Hildigunnar Sverrisdóttur arkitekts, Ólafs Hjálmarssonar hljóðverkfræðings og Ásta Logadóttur verkfræðings sem er sérfræðingur í ljósi. Björn Þorláks ræðir við þau. Stórskáldið færeyska, Carl Jóhan Jensen, segir okkur fréttir frá Færeyjum og ræðir um heimsókn Kristrúnar, varnarmál, nýlenduhyggju, bókmenntir og annað sem hæst ber. Það styttist í einn stærsta briddsviðburð um langt skeið hér á landi. Á Laugarvatni fer fram í byrjun næsta mánaðar Norðurlandamót og ræða þeir Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, og Magnús Magnússon landsliðsmaður horfurnar, auk þess sem Magnús segir frá því hvernig hann varð briddspilari í fremstu röð. Björn Þorláks hefur umsjá með bridsþætti Samstöðvarinnar.

Samherjastríð, rasismi, netöryggi, borgarskipulag og fuglahvísl

Samherjastríð, rasismi, netöryggi, borgarskipulag og fuglahvíslarrow_forward

S06 E076 — 05/20/2025

Við hefjum leik á umfjöllun um eitt voldugasta fyrirtæki landsins. Samherji hefur verið í stríði við listnemann Odee Friðriksson síðan hann bjó til heimasíðu í nafni Samherja og baðst afsökunar fyrir hönd fyrirtækisins á misgjörðum í Namibíu. Samherji stefndi Odee fyrir rétt í London og nú stendur áfrýjun fyrir dyrum, gríðarlega kostnaðarsöm málaferli. Gunnar Smári ræðir við Odee í þetta mál, eða þetta verk öllu heldur, sem hann er að semja með aðstoð Þorsteins Má í Samherja. Þar á eftir ræða Kristín Taiwo Reynisdóttir, antirasisti og Arna Magnea Danks, mannréttinda-fréttaritari,  rasisma á Íslandi í samtali við Oddnýju Eir Ævarsdóttur. Of lítill gaumur er gefinn að netöryggismálum. Þetta segir Marínó G. Njálsson ráðgjafi. Evrjóvisjón síðustu helgar, svik,  prettir og innbrot hafa vakið nýjar spurningar hjá almenningi um netöryggi og gefur Marínó hlustendum og áhorfendum nokkur hollráð hvað varðar öryggi í samtali við Björn Þorláks. Miklar meiningar eru flesta daga ársins um borgarskipulag. Oddný Eir Ævarsdóttir spjallar við Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúa og bókmenntamann um þau mál. Rauða borðinu lýkur með því að María Lilja ræðir við Tjörva Einarsson um fuglahvísl með góðum gesti í stúdíói, páfagaulknum Adoru.

Gaza, geðheilsa, málþóf, óþekkti þingmaðurinn, sósíalismi og torfbær

Gaza, geðheilsa, málþóf, óþekkti þingmaðurinn, sósíalismi og torfbærarrow_forward

S06 E075 — 05/19/2025

Ennþá versnar ástandið á Gaza, María Lilja fylgist náið með næstu daga. Í kvöld fær hún til sín Kötlu Ásgeirsdótttur, plötusnúð og aktívista og fara þær yfir nýjustu fréttir. Þá er endurflutt ræða Páls Óskars frá liðinni helgi. Ræðan var frumflutt á baráttufundi fyrir frelsi Palestínu fyrir gesti við Austurvöll. Elín Ebba Ásmundsdóttir varaformaður Geðhjálpar mætti ásamt listamönnunum Ægi Mána Bjarnasyni og Karli Kristjáni Dávíðssyni, auk Kolbrúnar Guðmundsdóttur, konu Karls Kristjáns, að tala um geðheilbrigðismál. Þau segja okkur frá nýrri viðbót í geðheilbrigðisþjónustu, jafningjastuðningsins, ásamt því að fara yfir fordóma, heimilisleysi og fleiri áskoranir sem fólk með geðrænar áskoranir þarf oft að glíma við auk veikinda sinna. Björn Leví Gunnarsson, tölvunarfræðingur, fyrrum þingmaður, útskýrir fyrir okkur mikilvægi málþófsins á Alþingi og ræðir um júróvisjón-atkvæðin, nefndirnar, skautunina, vókið og tilfinningatjáningu, áróður og gagnsæi. Snorri Másson ræðir við Björn Þorláks sem óþekkti þingmaðurinn þessa vikuna. Skoðanir Snorra eru umdeildari en gengur og gerist. Hver er maðurinn á bak við pólitíkina? Eyjólfur Eyvindsson kemur í vikulegt spjall við Maríu Lilju með fréttir af hnattræna suðrinu. Hannes Lárusson myndlistarmaður ólst upp í torfbæ til tíu ára aldurs. Hann lítur íslenska torfbæinn öðrum og jákvæðari augum en margir aðrir Íslendingar eins og fram kemur í samtali hans og Björns Þorlákssonar og vill að torfbærinn fari á heimsminjaskrá UNESCO.

Helgi-spjall: Andri Snær

Helgi-spjall: Andri Snærarrow_forward

S06 E074 — 05/17/2025

Andri Snær Magnason rithöfundur segir frá nýjustu ævintýrum sínum í Himalajafjöllum og Feneyjum og fer yfir feril sinn sem rithöfundur og aðgerðarsinni.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí