Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
arrow_forward
Hvers vegna er Salka svona nútímaleg greining á kynferðisofbeldi?
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við …
arrow_forward
Sagði Marco Rubio nokkuð annað en JD Vance sagði í fyrra?
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.
Þættir
Vikuskammtur: Vika 20arrow_forward
Í frjálst spjall út frá fréttum vikunnar mæta þau Brynhildur Björnsdóttir, kabarett-söngkona og höfundur bókarinnar Venjulegar konur -vændi á Íslandi, Arnar Eggert Thoroddsen, félagsfræðingur við Háskóla Íslands og Sigrún Sandra Ólafsdóttir, textíl-sóunar og fata-neyslufræðingur og Ágúst Borgþór Sverrisson, rithöfundur og fréttastjóri Dv og fara yfir fréttir vikunnar með Oddnýju Eir og segja sínar eigin fréttir.
Trump, Vesturbugt, kvíði, Starmer, skoðanakúgun og kynjaþingarrow_forward
Eiríkur Bergmann prófessor ræðir áhrif Trump á stjórnmálin utan Bandaríkjanna við Gunnar Smára. Gunnar Smári ræðir hverfið sem byggja á vestan við Slippinn við Reykjavíkurhöfn við Ástu Olgu Magnúsdóttur, íbúa á svæðinu og verkefnastjóra, Egil Sæbjörnsson, myndlistarmann og aðgerðasinna í byggingarlist og Pál Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði og stofnanda Envalys. Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og rithöfundur ræðir við Oddnýju Eir um nýútkomna bók sína ,,Ég er ekki fullkominn” þar sem hann fjallar á persónulegan og skemmtilegan hátt um viðureign sína við kvíða. Gunnar Smári slær á þráðinn til Guðmundar Auðunssonar hagfræðings í London og ræðir við hann um stöðuna í breskum stjórnmálum, ekki síst hraðleið Verkamannaflokks Keir Starmer til hægri. Allt snýst um tengsl og klíkur á Íslandi er kemur að störfum og tækifærum segir nemi í félagsráðgjöf og ljósmyndari, Sigga Svanborgardóttir, sem býr í Danmörku. Björn Þorláks ræðir við hana. Oddný Eir ræðir við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastýru Kvenréttindafélags Íslands, um nýliðið kynjaþing, norræna kvennasamstöðu og stöðuna á kvennasamstöðunni.
Trump, náttúra, vinstrið, reynsluboltar, norðurslóðir og blíðanarrow_forward
Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um ferð Trump til Sádí Arabíu og nágrannalanda og um mögulegar friðarviðræður í Istanbúl á morgun. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir Oddnýju Eir hvernig þrengt er að starfi frjálsra félagasamtaka í náttúruvernd. Einar Már Jónsson, sagnfræðingur, rithöfundur og prófessor við Sorbonne-háskóla í París ræðir við Oddnýju Eir um möguleikann á vinstri breiðfylkingu í pólitík dagsins. Reynsluboltar heimsækja Sigurjón Magnús og ræða fréttir dagsins: Erna Indriðadóttir fréttakona, Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður. Magnús Árni Skjöld, dósent og stjórnmálafræðingur við Háskólann á Bifröst, ræðir við Gunnar Smára um Ísland og norðurslóðir í breyttum heimi, ekki síst vegna stjórnmálalegrar óvissu í Bandaríkjum Trump. Trausti Jónsson veðurfræðingur upplýsir í samtali við Björn Þorláks að ef undan er skilinn janúar hafi veður hér á landi verið mjög milt og gott allt árið, svo gott að sætir tíðindum.
Fordómar, njósnir, arkitektúr, fegurð, dýravernd og félagsvandi fíkniefna arrow_forward
Við hefjum Rauða borðið á samræðu um leigubílamálið; Íslendingur að nafni Navid Nouri segir svo komið að honum sé ekki stætt að stunda akstur leigubíls, líkt og hann hefur gert að atvinnu í nokkur ár, vegna aukinna fordóma í samfélaginu. Eiginkona Navids, Nanna Hlín Halldórsdóttir mætti með honum til Maríu Lilju. Jón Þórisson, arkitekt, segir frá stríðinu um söguskýringar á hruninu í tengslum við ásakanir á hendur sérstökum saksóknara, ræðir um njósnir og spillingu og segir okkur af samstarfi sínu við Evu Joly eftir hrun. Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt ræðir húsin í borginni í samtali við Björn Þorláks, um pólitík byggingarlistar, vöntun á frumkvæði og fegurð. Ágúst Ólafur Ágústsson, ritari Dýravelferðarsamtaka Íslands, mætir til Maríu Lilju og fer yfir hina meintu öfga í dýravernd. Eru öfgarnar kannski úr hinni áttinni? Við ræðum að lokum um vímuefnavandann. Erla Björg Sigurðardóttir, lektor í félagsráðgjöf og framkvæmdastýra á áfangaheimili fyrir konur, Helena Gísladóttir, dagskrárstjóri meðferðar Krýsuvíkursamtakanna og MA-nemi í félagsráðgjöf og Sara Karlsdóttir löggiltur áfengis og vímuefnaráðgjafi og dagskrárstjóri meðferðar hjá Samhjálp segja Gunnari Smára frá því hvernig félagsleg staða fólks með vímuefnaraskanir getur grafið undan möguleikum þess á bata.
Trillusjómenn, spilling, fjölmiðlar, ofbeldi feðra, Me-dagurinn og heimþráarrow_forward
Við hefjum Rauða borðið á spjalli Maríu Lilju við trillusjómenn sem voru fastir í landi vegna öldugangs í Faxaflóa. Hún kíkti um borð í Ríkey og ræddi við bræðurna um borð um daginn og sjóinn. Svo ræðir Björn Þorláks við Þorvald Logason spillingarfræðing um siðferðilegar meinsemdir líðandi stundar í þjóðfélaginu, um fjölmiðla og vaxandi ítök útgerðarinnar í upplýsingaheiminum, sölu Íslandsbanka og bankahrunið. Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir varði um daginn doktorsritgerð sína um feður sem beitt hafa ofbeldi. Hún kemur að Rauða borðinu og segir Gunnari Smára frá hvers hún varð vísari, veltir fyrir sér hvort ofbeldismenn geti breyst og hvernig samfélagið bregst við ofbeldinu og þeim sem beita því. Eyjólfur Eyvindsson mætir til Maríu Lilju og ræðir fréttir úr ríkjum sósíalismans. Þau fara á ferðalag um heiminn og ræða meðal annars nýtt bandalag Búrkína Fasó við Venesúela. Helga Edwardsdóttir, formaður ME félags Íslands og Stefanía Veiga Sigurjónsdóttir, flugfreyja og aðstandandi, ræða við Oddnýju Eir um ME á Íslandi í tilefni Alþjóðlegs dags ME vitundarvakningar. Æ fleiri glíma við langvarandi afleiðingar sýkinga og við þurfum að vera betur vakandi fyrir alvarlegum áhrifum þeirra á líf okkar. Jasmina Vajzovic sem fæddist í Bosníu en flutti ung til Íslands ræðir tilfinningar eins og heimþrá og ber saman kosti og galla landanna tveggja. Flókið getur verið að skilja táknkerfi Íslendinga, segir Jasmina. Björn Þorláks ræðir við hana í lok þátta
Helgi-spjall: sr. Pétur Þorsteinssonarrow_forward
Í Helgispjalli Ruða borðsins er Pétur Þorsteinsson prestur óháða safnaðarins, sem stendur á tímamótum. Á sunnudag messar hann yfir sóknarbörnum sínum í síðasta skipti, hann kallar það lífslokamessu. Pétur hefur lengi verið þekktur fyrir petrískuna en með gamansömum hætti hefur hann fundið upp nýyrði og gefið út, orð sem gjarnan snúa upp á tunguna. En hver er manneskjan á bak við tunguna og húmorinn? Björn Þorláks reynir að komast undir yfirborðið.
Vikuskammtur: Vika 19arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau María Hjálmtýsdóttir kennari, Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Haukur Már Helgason rithöfundur og Ása Björk Ólafsdóttir prestur og ræða fréttir vikunnar þar sem finna á njósnir, svik, deilur, þjóðarmorð, frið og nýjan páfa.
Trillur, Grænland, ófriður, trans, þingkona og börnarrow_forward
Strandveiði byrjaði í vikunni. Gunnar Smári ræðir við Kjartan Sveinsson, formann Félags strandveiðimanna, um gildi veiðanna og verðmæti fyrir þjóðarbúið. Ný sláandi heimildarmynd um uppljóstrun á áður óþekktu arðráni á Grænlandi er til umræðu hjá Oddnýju Eir. Sólveig Ásta Sigurðardóttir, bókmenntafræðingur og ný-doktor á hugvísindasviði HÍ, Már Wolfgang Mixa, dósent í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Bryndís Björnsdóttir, myndlistarkona og doktorsnemi í mannfræði og Linda Lyberth Kristiansen sérfræðingur i málefnum árþjóða hjá Arctic Circle, ræða um Grænland og nýlenduhyggju. Átök hafa brotist út milli Indlands og Pakistan og bæta þau enn við ófriðinn í heiminum. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri um þau átök en ekki síður um stefnu Bandaríkjastjórnar í alþjóðamálum og þá sérstaklega í Evrópu. Arna Magnea Danks, leikkona, leikstjóri, kennari, og mannréttinda-fréttaritari okkar segir Oddnýju Eir frá nýjustu Trans-tíðindin í tengslum við pólitík heima og heiman. Hinn óþekkti þingmaður þessarar viku er tónlistarkonan Ása Berglind Hjálmarsdóttir, ný þingkona Samfylkingarinnar. Ása Berglind ræðir líf sitt á persónulegum nótum við Björn Þorláks en í þættinum eru flest umræðuefni leyfð – önnur er pólitík! Eydís Ásbjörnsdóttir, þingkona og talsmaður barna á Alþingi segir okkur Oddnýju Eir frá helstu baráttumálum í málefnum barna um land allt og sérstaklega út frá sjónarhorni landsbyggðarinnar.
Þjóðarmorð, reynsluboltar, fríhöfn, rafmagnsleysi, þroski barna og bridgearrow_forward
Gunnar Smári slær á þráðinn til Qussay Odeh í Jerúsalem og innir hann eftir viðbrögðum Palestínumanna við þjóðarmorðinu og vaxandi kúgun. Sigurjón fær til sín reynslubolta að ræða samfélagsmál: Ásmundur Friðriksson fyrrverandi þingmaður, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Jón G. Hauksson blaðamaður ræða helstu fréttamál. Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir Gunnar Smára hvernig erlent fyrirtæki sem rekur Fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli misnotar einokunarstöðu sína til þrýsta niður verði frá birgjum. Fyrst og fremst til að auka eigin hagnað. Árni Baldur Möller verkfræðingur og Jón Skafti Gestsson hagfræðingur hjá Landsneti ræða um stórfellt rafmagnsleysi á Íberíuskaganum og velta fyrir sér í samtali við Gunnar Smára hvort sambærilegur skaði gæti orðið vegna veikleika flutningskerfisins hérlendis. Að fæðast snemma á árinu er stærri breyta en áður hefur verið talið þegar kemur að því að börn fái tækifæri til að keppa í úrvalshópum í námi og íþróttum. Daði Rafnsson doktorsnemi segir Birni Þorláks frá því hverju það skiptir að fæðast snemma árs eða seint. Bridgeþáttur Samstöðvarinnar fjallar í kvöld um úrslit Íslandsmótsins í sveitakeppni og hið stórskemmtilega kjördæmamót. Aðalsteinn Jörgensen stigahæsti spilari landsins og Ragnar Magnússon menntaskólakennari og glænýr Íslandsmeistari ræða við Björn Þorláks þáttastjórnanda og ber doblaða alslemmu á góma!
Húsnæðismál, mótmæli, Gaza, Þýskaland, aðkomufólk, hannyrðir og maðkabækurarrow_forward
Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins, er formaður átakshóps ríkisstjórnarinnar um húsnæðismál. Sem eru í tómu tjóni. Ragnar segir Gunnari Smára hvernig hann ætlar að bjarga málunum. María Lilja ræðir við mótmælendur við ríkisstjórnarfundinn í morgun, fólk sem krefst aðgerða íslenskra stjórnvalda vegna þjóðarmorðs í Gaza. Guðný Gústafsdóttir, Júlía Björnsdóttir og Elínborg Angantýsdóttir hafa allar verið í virkum samskiptum við fólk og fjölskyldur sem búa við yfirstandandi þjóðarmorð á Gaza. Þær segja Laufey frá sínu fólki þar og þeirra daglegu baráttu um lífsnauðsynjar. Margt er upp í loft í þýskum stjórnmálum. Ný ríkisstjórn fékk ekki nægan stuðning í þinginu í fyrstu tilraun og vinsælasti flokkurinn í skoðanakönnunum er sagður vinna gegn mannhelgi er hornsteinn stjórnarskrárinnar. Ragnar Hjálmarsson stjórnmálafræðingur í Berlín fer yfir stöðuna í símtali við Gunnar Smára. Halldór S. Guðjónsson, dósent við Háskóla Íslands, vinnur að athugun á hversu margt af því fólki sem hefur flutt til Íslands mun eyða ævikvöldinu á Íslandi og hversu margt snýr til baka. Hann ræðir við Sigurjón um málið. Najlaa Atillah ræðir við Maríu Lilju um mikilvægar hefðir í palestínsku handverki og hvers vegna hún hefur tekið það upp að kenna Íslendingum palestínskan útsaum í miðju þjóðarmorði á fólkinu hennar. Íslenskar „maðkabækur“ eru til sölu á Amazon. Bækurnar fjalla ekki um orma heldur eru þetta matreiðslubækur. Bjarki Ármannsson, doktorsnemi í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, vakti athygli á bókunum á bloggsíðu sinni Bjarkamál en hann ræðir við Maríu Lilju um málvísindi með tilliti til gervigreindar.