Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Solaris, fæðuöryggi, reynsluboltar, þingmaður, maurar og kynlífsverkafólk

Solaris, fæðuöryggi, reynsluboltar, þingmaður, maurar og kynlífsverkafólkarrow_forward

S06 E063 — 03/19/2025

Við hefjum þáttinn á viðtali Laufeyjar Líndal Ólafsdóttur við Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttir Kemp og lögmanninn Gunnar Inga Jóhannsson, um Solaris málið svokallaða en ríkissaksóknari fól lögreglu að rannsaka fjársöfnun og átaksverkefni til að koma fólki út af Gaza. Bændur og búalið hér á landi sjá fram á breytta tíma. Hugsanleg innganga í ESB gefur tilefni til að ræða ógnir og tækifæri að sögn formanns Bændasamtakanna, Trausta Hjálmarssonar. Hann ræðir við Björn Þorláks um stöðuna og Búnaðarþing sem verður sett á morgun. Vikulegi dagskrárliðurinn Reynsluboltar er á sínum stað og að þessu sinni eru það þau Erna Bjarnardóttir, Magnús R. Einarsson og Sigrún Jónsdóttir sem fara yfir helstu mál líðandi stundar. Eðlilega rata þeir Trump og Pútín í umræðuna og svo eru það helstu innanlandsmálin. Óþekkti þingmaðurinn sem þessa vikuna ræðir við Björn Þorláks á persónulegum nótum er Ingvar Þóroddsson. Hann er einnig yngsti þingmaðurinn nú um stundir. Ingvar lýsir með opinskáum hætti hvernig efasemdir um eigin verðleika urðu honum áskorun. Arnar Pálsson og Andreas Guðmundsson líffræðingar mættu til Maríu Lilju með heilt samfélag maura Að lokum koma þau Ari Logn og Renata Sara Arnardóttir en þau eru talsfólk Rauðu regnhlífarinnar og ræða meðal annars kvikmyndina Anora og stöðu kynlífsverkafólks í samfélaginu í dag

Þjóðarmorð, fátækt, klám, orgelleikur og guð

Þjóðarmorð, fátækt, klám, orgelleikur og guðarrow_forward

S06 E062 — 03/18/2025

Fólkið í Gazaborg var vakið upp við loftárásir Ísraela og Bandaríkjanna. Félagið Ísland Palestína stóð fyrir mótmælum í morgun og þrýsti á íslenska ráðamenn um að setja á viðskiptabann og slíta stjórnarsamstarfi. María Lilja fær til sín Svein Rúnar Hauksson, formann FÍP og fara þau yfir fréttir dagsins frá Palestínu. Skylt er að vara við myndefni sem spilað verður í innslaginu en María Lilja klippti saman efni frá blaðafólki og almenningi á staðnum. Vaxtaumhverfi námslána er út úr kú og hafa breytingar sem orðið hafa á kerfinu sumpart aukið efnahagslega stéttaskiptingu. Þetta segir Lísa Margrét Gunnarsdóttir forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta en Björn Þorláksson ræðir við hana um slembilukku, tengda pólitískri hugmyndafræði hverju sinni sem veldur því að sumar kynslóðir fá hagstæð námslán en aðrar alls ekki. Við ræðum um ást og klám við Láru Martin, kvikmyndagerðarkonu og kvikmyndafræðing sem ræðir um erkitýpu vændiskonunnar í menningu okkar og gagnrýni kynlífsverkafólks á myndina Anora.  Við endum Rauða borðið á umræðu um nýstárlega notkun guðshúsa. Björn Þorláksson ræðir við Kristján Hrannar Pálsson, organista. Stundum er sagt að kirkjurnar, hús í eigu almennings, standi of mikið auðar og að hugsanlega mætti auka nýtingu þessara bygginga sem sum okkar kalla guðshús.Við kynnum okkur nýjung í viðburðastarfi, svokallað orgelbíó sem Kristján Hrannar Pálsson organisti fræðir okkur um og fleira.

Fullveldi, fjölmiðlar, öryggismál, raddir almennings, Reykjanes og skák

Fullveldi, fjölmiðlar, öryggismál, raddir almennings, Reykjanes og skákarrow_forward

S06 E061 — 03/17/2025

Við hefjum leik á viðtali Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur við Harald Ólafsson hjá Heimssýn. Haraldur telur að valkyrkjustjórnin sé að reyna að koma landsmönnum inn í ESB undir fölsku flaggi varnarmála. Einnig verður umræða um fjölmiðla í umsjá Björns Þorláks þar sem blaðamennirnir Páll Ásgeir Ásgeirsson, Sigurjón Egilsson og Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson ræða málin. Gunnar Smári Egilsson ræðir við Helen Ólafsdóttur ráðgjafa um alþjóða öryggismál. Maríu Lilja spyr almenning álits á fréttnæmum fyrirbærum. Við bíðum flest eftir eldgosi á Sundhnúkagígaröð. En hvað teiknast upp ef kvika fer að leita upp á öðrum slóðum en þeim sem hafa verið virkastar á Reykjanesinu? Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur ræðir nokkrar sviðsmyndir. Og við ljúkum Rauða borðinu með umfjöllun um skáklistina, stórmót sem haldið var fyrir norðan um helgina. Hermann Aðalsteinsson formaður Goðans í Þingeyjarsýslu og Björn Þorfinnsson sem vann mótið ræða ævintýri skáklistarinnar.

Helgi-spjall: Dagur B.

Helgi-spjall: Dagur B.arrow_forward

S06 E060 — 03/15/2025

Dagur B. Eggertsson þingmaður og fyrrum borgarstjóri er gestur Helgi-spjallsins þessa vikuna. Dagur ræðir uppvöxtinn, læknavísindin, pólitíkina, borgina og persónuleg mál við Björn Þorláksson.

Vikuskammtur: Vika 11

Vikuskammtur: Vika 11arrow_forward

S06 E059 — 03/14/2025

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Vilborg Bjarkadóttir doktorsnemi í þjóðfræði, Magnús Jochum Pálsson blaðamaður og gagnrýnandi,  Þorkell Heiðarsson deild­ar­stjóri hjá Dýraþjón­ustu Reykja­vík­ur og Ester Bíbi Ásgeirsdóttir bassaleikari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af Trump innan lands og utan en líka slætti og látum í pólitíkinni hér heima.

Fasísk sveifla, gróandi, ásakanir, heilahvel, tálbeitur, feðraveldi og endurhæfing

Fasísk sveifla, gróandi, ásakanir, heilahvel, tálbeitur, feðraveldi og endurhæfingarrow_forward

S06 E058 — 03/13/2025

Magnús Helgason sagnfræðingur og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúI ræða við Gunnar Smára um hvernig Donald Trump er að breyta Bandaríkjunum. Hversu miklar geta þær breytingar orðið? Og munu þær ganga til baka í næstu pólitísku sveiflu. Lexí Líndal, plötusnúður og listakona og Máni Emeric Primel, leikari ræða um reynslu sína af Janus endurhæfingu sem nú á að loka og sorgina yfir því að öll þessi einstaka sérfræðiþekking sem hefur byggst þar upp til endurhæfingar fyrir ungt fólk með einhverfu og fjölþættan vanda sé nú í hættu. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Helga Gunnlaugsson afbrotafræðing um tálbeitur, en það fyrirbæri er mikið í umræðunni núna í tengslum við hræðilega glæpi á Íslandi. María Pétursdóttir, formaður málefnastjórnar Sósíalistaflokks Íslands og Sara Stef Hildar varaformaður framkvæmdastjórnar ræða við Oddnýju Eir um hitamál flokksins eftir gagnrýni lítils hóps flokksins og uppgjör eins félaga og ásakanir um einelti, útskúfun, þöggun og ólýðræði. Hildur Dagbjört Arnardóttir fer fyrir samfélagsverkefninu Gróanda og hefur byggt upp nytjagarð sl. 9 ár sem fólkið á Ísafirði hefur aðgang að, endurgjaldslaust. Mannréttindafréttaritari okkar, Arna Magnea Danks ræðir um nýjustu aðgerðir Trömpstjórnar og innlends æsings vegna þátttöku sumra í kvennagöngu og spurningarinnar ,,Hvað er kona?” Hún segir okkur frá því hvernig tilvera hennar er ögrun við feðraveldið, eins og fokkmerki og frá nýrri bíómynd sem hún leikur í, Ljósvíkingar sem hefur fengið lof úti í heimi. Elín Agla Briem, þjóðmenningarbóndi, segir frá reynslu sinni af lífinu á Ströndum, af pólitískum átökum sem urðu persónulegar og segir frá nýjum heilahvelsrannsóknum sem setja pólaríseringu í nýtt samhengi og mannskepnuna í ný tengsl við náttúruna.

Grænland, spilling, reynsluboltar, neytendur, sjálfsskrif, fræ framfara og Akureyri

Grænland, spilling, reynsluboltar, neytendur, sjálfsskrif, fræ framfara og Akureyriarrow_forward

S06 E057 — 03/12/2025

Við hefjum leik á  umfjöllun um stjórnmál en aldrei hafa kosningar í Grænlandi vakið meiri athygli en nú. Það skýrist ekki síst af áhuga Bandaríkjaforseta á að sölsa Grænland undir sig og ræðir María Lilja við Ingu Dóru Guðmundsdóttur um niðurstöður kosninganna. Atli Þór Fanndal, sem starfaði við spillingarvarnir um árabil, ræðir spillingu, fjölmiða, siðferðisleg álitamál og neikvæða umræðu gagnvart eftirlitsstofnunum í samtali við Björn Þorláks. Þátturinn Reynsluboltar verður á dagskrá undir stjórn Sigurjóns Egilssonar. SME ræðir við Árna Hjartarson jarðfræðing, Kristínu Ástgeirsdóttur fyrrverandi þingmann með meiru og Viðar Eggertsson leikara. Umræðuefnið er sótt í daginn og veginn. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, ræðir heimilin í landinu og fjárhag almennings. Við spyrjum hvort Neytendasamtökin séu bjartsýn á áframhaldandi vaxtalækkun og fjöllum um óskalista Neytendasamtakanna. Við fjöllum einnig um sjálfsskrif: Róbert Hilmar Haraldsson heimspekingur, Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur og Davíð Ólafsson menningarfræðingur ræða við Gunnar Smára Egilsson. Jón Einar Kristjánsson, sagnfræðingur kemur og fjallar um fræ framfara, það er að segja akuryrkju og framfarahugsun á átjandu öld og hvernig megi læra af þeim jarðvegi i dag. Og við endum þáttinn með því að hringja norður til Akureyrar, við heyrum í Skapta Hallgrímssyni ritstjóra sem segir okkur tíðindi úr höfuðstað norðurlands þar sem einna hæst ber að mörg flug eru nú í boði fyrir Norðlendinga beint út í heim.

Breytt staða, húsnæðismarkaður, rektor, símabann, Auður Haralds, samræðan og karlar

Breytt staða, húsnæðismarkaður, rektor, símabann, Auður Haralds, samræðan og karlararrow_forward

S06 E056 — 03/11/2025

Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur, prófessor við Háskólann á Bifröst,  ræðir við Björn Þorláks um gjörbreytta stöðu sem blasir við íslensku ríkisstjórninni vegna utanríkismála. Allar líkur eru á því að aðstæður hafi áhrif á ESB-áhuga Íslendinga. Sigurður Stefánsson framkvæmdastjóri Aflvaka greinir hvernig húsnæðismarkaðurinn ýtir undir misskiptingu auðs í samtali við Gunnar Smára. Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands, er síðasti frambjóðandinn til rektors sem mætir í spjall til Gunnars Smára um háskólann og stöðu hans í samfélaginu. Barnamálaráðherra hefur boðað símabann í öllum grunnskólum landsins frá og með næsta hausti. En er það raunhæft? Björn Gunnlaugsson skólastjóri Laugalækjarskóla og Skúli Bragi Geirdal hjá Fjölmiðlanefnd eru ekki á einu máli – Björn Þorláks ræðir við þá. Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðakona, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og pistlahöfundur og Katrín Axelsdóttir málfræðingur segja Gunnari Smára frá Auði Haralds, sem var frumkvöðull í bókmenntum og textasmíð og óheyrilega fyndin. Vilhjálmur Árnason, heimspekiprófessor emeritus við Háskóla Íslands, ræðir um mátt samræðu og friðarviðræðna á myrkum tímum ofbeldis og stríð og segir frá sinni reynslu af því að gagnrýna og koma á fót samræðu um samfélagið. María Lilja ræðir við karlmenn á krossgötum, tónlistarmennirnir og metal-hausarnir Birkir Fjalar Viðarsson í Adapt og Karl Thorsten Ställborn Skratti ræða karlmennsku sína og samfélagsins.

Ríkisútvarpið, rektorskjör, blaðamannaverðlaun, rödd almennings og kukl

Ríkisútvarpið, rektorskjör, blaðamannaverðlaun, rödd almennings og kuklarrow_forward

S06 E055 — 03/10/2025

Við hefjum leik við Rauða borðið með þeim Ragnari Sigurði Kristjánssyni, hagfræðingi hjá Viðskiptaráði og Stefáni Eiríksson útvarpsstjóra. Á Rúv að víkja af auglýsingamarkaði? Er Rúv bleiki fíllinn sem er að lama einkarekna fjölmiðlun í landinu? Björn Þorláks stýrir umræðunni. Gunnar Smári ræðir við Silju Báru R. Ómarsdóttur prófessor í stjórnmálafræði, sem hefur boðið sig fram til rektors Háskólans. Háskólinn er á margskonar tímamótum, hvernig vill Silja Bára að brugðist verði við? Við heyrum raddir fólksins í landinu. Oddný Eir ræðir við fólk á förnum vegi um varnarmál Íslendinga og utanríkismál. Þá ber tugþraut einnig á góma. Sunna Kristín Hilmarsdóttir, sem stýrir dómnefnd um blaðamannaverðlaun, ræðir verðlaunin ásamt blaðamönnunum Maríu Lilju, Oddnýju Eir Ævarsdóttur og Birni Þorláks. Afhending verðlaunanna fer fram á miðvikudag. Og María Lilja endar þáttinn með samræðu um kukl við Guðrúnu Tinnu Thorlacius. Þær ræða hulduheima og talnaspeki og spá í tarotspil.

Helgi-spjall: Héðinn Unnsteins

Helgi-spjall: Héðinn Unnsteinsarrow_forward

S06 E054 — 03/08/2025

Héðinn Unnsteinsson, rithöfundur og ráðgjafi segir okkur frá lífi sínu í punktinum og utan hans, í skáldskap og samveru, einveru og rannsóknum á geði, kerfum, erfðum, áföllum, framsýni, frumefnum, næveru.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí