Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
arrow_forward
Hvers vegna er Salka svona nútímaleg greining á kynferðisofbeldi?
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við …
arrow_forward
Sagði Marco Rubio nokkuð annað en JD Vance sagði í fyrra?
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.
Þættir
Vikuskammtur: Vika 10arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Guðrún Lína Thoroddsen klippari, Lóa Hjálmtýsdóttir myndlistarkona, Þorsteinn J. Vilhjálmsson fjölmiðlamaður og Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af fyrirferð Donald Trumps, stríðsvæðingu Evrópu, tillögum um sparnað og niðurskurð og allskyns álitamálum.
Fjármálastríð, Gaza, bakarí, friðarvaka, rektor, bókaspjall, sögurarrow_forward
Guðrún Johnsen, hagfræðingur og deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst, ræðir við Oddnýju Eir um efnahagslegt ástand heimsins og öflin sem öllu ráða. Sema Erla Serdarouglu, stjórnarformaður Solaris og Magnea Marinósdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur setjast til borðs með Maríu Lilju og ræða ástandið á Gaza og frægt kærumál ber á góma. Sigurður Már Guðjónsson, bakara- og kökugerðarmeistari í Bernhöftsbakarí, segir Gunnari Smára frá vanda þeirra sem eru í smárekstri, Ragnheiður Steindórsdóttir, Sólveig Hauksdóttir og Júlía Hannam senda út ákall um frið með ljóðalestri hjá Maríu Lilju. Gunnar Smári heldur áfram að ræða þau sem vilja verða rektor Háskóla Íslands. Nú er komið að Birni Þorsteinssyni prófessor í heimspeki. Kristín Helga Gunnarsdóttir, rithöfundur kemur í bókaspjall með Vigdísi Grímsdóttur og Oddnýju Eir. Sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi er nýtt íslenskt ritverk. Elinóra Guðmundsdóttir, ritstjóri verksins ræðir við Björn Þorláks.
Brim, reynsluboltar, auðlindir, siðareglur, rektor, hin sagan, öryrkjar, þjóðmenningarrow_forward
Haraldur Sigurðsson prófessor og doktor í jarðefnafræði ræðir frá Bandaríkjunum við Björn Þorláksson um hækkun yfirborð sjávar sem getur valdið stórskaða í skaðabrimi eins og síðustu daga. Fyrrum þingmennirrnir Ásmundur Friðriksson, Mörður Árnason og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir eru reynsluboltarnir að þessu sinni. Kristín Vala Ragnarsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni við Háskóla Íslands, prófessor emerita, segir okkur frá raunverulegum kostnaði hins blóðuga auðlindastríðs sem háð er í heiminum. Friðrik Þór Guðmundsson, blaðamaður til langs tíma, kennari og fræðimaður, ræðir siðareglur Blaðamannafélags Íslands og hvort eða að hve miklu leyti starfsreglur blaðamanna hafa áhrif á efnistök og áherslur fjölmiðla. Gunnar Smári heldur áfram að ræða við frambjóðendur til rektors Háskóla Íslands. Það er komið að Ingibjörgu Gunnarsdóttur, aðstoðarrektor vísinda og samfélags og prófessor í næringarfræði. Rakel Adolphsdóttir, fagstjóri hjá Kvennasögusafni Íslands segir okkur frá afmælishátíð þessa safns, sem geymir hina söguna. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ ræðir landsáætlun í málefnum fatlaðra, lögfestingu réttindasamnings SÞ, inngildingu og átakið „fyrir okkur öll”. Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur fer yfir uppruna íslenskrar þjóðmenningar og ræðir hefðir á Öskudegi við Maríu Lilju.
Trump, Nató, Háskólinn, þingkona, konur og heimilisleysiarrow_forward
Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um hvort Trump takist að sveigja Úkraínustjórn og Evrópu undir sín markmið. Við förum síðan í Múlakaffi með Maríu Lilju og hefjum svo viðræðu um háskólasamfélagið við þau sem hafa boðið sig fram til rektors. Magnús Karl Magnússon prófessor í læknadeild ríður á vaðið og ræðir við Gunnar Smára. Björn Þorláks ræðir við síðan við Maríu Rut Kristinsdóttur, þingkonu Viðreisnar, baráttukonu frá Flateyri. Hún fjallar hispurslaust um kynferðislegt ofbeldi sem hún varð fyrir og snjóflóðið á Flateyri svo nokkuð sé nefnt. Loks ræðir María Lilja við þær Kristínu I. Pálsdóttur og Halldóru R. Guðmundsdóttur forstöðukonur Rótarinnar og Konukots um vanda heimilislausra kvenna og konur með fíknivanda.
Trump, efnahagurinn, spillingin, Rússland, Anora og einræðisþráarrow_forward
Við ræðum Trump á bolludegi. Fyrst ræðir Gunnar Smári við Þorvald Gylfason prófessor í hagfræði um áhrif stefnu Trump á efnahag heimsins. Hver er stefna Trump og er hún til eftirbreytni? Gunnar Smári ræðir einnig við Jón Ólafsson prófessor í heimspeki um áhrif stefnu Trump á stöðu Rússlands. Í millitíðinni ræðir Björn Þorláks við Henry Alexander Henrysson um hvort brotthvarf Bjarna Benediktssonar boði siðbót, um biðlaun Ragnars Þórs Ingólfssonar og önnur siðræn álitamál. Árni Sveinsson kvikmyndaleikstjóri, Lóa Björk Björnsdóttir útvarpskona og Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur ræða við Gunnar Smára um Óskarsverðlaunamyndina Anora og María Lilja ræðir við Ásu Lind Finnbogadóttur kennara og Valgerði Árnadóttur formann Samtaka grænkera um um hlutverk kvenna og pólitík dagsins í dag. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur ræðir um helstu ógnir lýðræðis í dag við Oddnýju Eir um einræðisþrá tæknirisanna í Kísildalnum, um auðlindastríð og hernaðarlega nýsköpun.
Helgi-spjall: Pétur Gunnarssonarrow_forward
Pétur Gunnarsson rekur ferð sína um hugmyndir og heimsmyndir, hugsjónir sem hafa risið og hnigið, byltingar sem blómstruðu eða koðnuðu niður og aðrar sem runnu sitt skeið og reynir að skilja stöðu heimsins í dag, sem er kannski háskalegri en nokkurn tíma um daga Péturs.
Vikuskammtur: Vika 09arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson nemi í mannfræði, Freyr Eyjólfsson öskukarl, Theódóra Björk Guðjónsdóttir nemi í félagsráðgjöf og Halldór Auðar Svansson fyrrverandi borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af viðbrögðum við stefnu Donald Trump, nýjum meirihluta í Reykjavík, samningum kennara, hugmyndum um her og mörgum öðru.
Öryggi, her, hugvíkkun, skipulag, bækur og ljóðarrow_forward
Helen Ólafsdóttir ráðgjafi í öryggismálum ræðir við Gunnar Smára um öryggismál Evrópu og Íslands eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump. Bjarni Már Magnússon prófessor í lögfræði við Bifröst og Kristján Þór Sigurðsson, doktor í mannfræði takast á undir stjórn Maríu Lilju um hugmynd Bjarna um að kominn sé tími til að Íslendingar stofni her vegna víðsjár í heimsmálum. Mikið er rætt um sveppatripp þessa dagana og hvort lækning gegn áföllum leynist í þeim. Borið hefur á því að þjóðþekkt fólk flíki sveppum og sumir segjast hafa orðið edrú af þeim, þurfi ekki meðferð hjá SÁÁ. Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ ræðir málin við Björn Þorláks. Hilmar Þór Björnsson arkitekt og Ásta Logadóttir ljósvistarsérfræðingur eru hluti hóps sem stendur fyrir ákalli um breytt viðhorf til skipulagsmála. Þau útskýra fyrir Gunnari Smára hvers vegna borgin er að þróast eftir hagsmunum fjármagnsins en ekki almennings. Vigdís Grímsdóttir og Oddný Eir ræða við skáld og bókafólk. Að þessu sinni kemur ritstjórinn Guðrún Steinþórsdóttir og ræðir um skynsvið bókmennta. Hvernig bækur geta aukið samlíðan og bætt bæði okkur og heiminn. Síðan kemur Eiríkur Örn Norðdahl að borðinu, nýtilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir bók sína Náttúrulögmálin.
Rannsóknablaðamennska, karlmennska, Ragnar Þór, reynsluboltar og Öskjuhlíðarrow_forward
Við hefjum leik á umræðu um spillingu og skyldum fjölmiðla að sporna gegn spillingu í stað þess að strjúka henni. Hefur fallið á trúverðugleika Fjórða valdsins með flokkadráttum? Sigurjón Magnússon Egilsson og Björn Þorláks ræða málin auk þess sem Sigurjón segir frá erfiðasta fréttamáli sem hann hefur glímt við. Viktor Gunnarsson, mma-kappi og Brynjar Karl körfuboltaþjálfari velta fyrir sér líðan karla og lausnum til að vinna úr vanda þeirra. María Lilja ræðir við þá undir yfirskriftinni Karlmennska á krossgötum. Sigurjón Magnús Egilsson kallar Reynsluboltana til leiks í þjóðmálaumræðunni. Þau Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur, Bolli Héðinsson hagfræðingur og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður og fyrrverandi blaðamaður ræða saman um púlsinn í íslensku samfélagi. Einn umtalaðasti þingmaður dagsins í dag, Ragnar Þór Ingólfsson, situr fyrir svörum og ræðir persónulegt líf sitt í seríunni Óþekkti þingmaðurinn. Björn Þorláks spyr nýja þingmanninn spjörunum úr og ber biðlaunamálið á góma. Og Oddný Eir Ævarsdóttir lýkur þættinum með viðtali við Maríu Ericsdóttir Panduro sem kallar skógarhöggið í Öskjuhlíð ekkert annað en eyðileggingu.
Lögregluofbeldi, þýsk stjórnmál, kvikmynd um flóttafólk og íslenskur landbúnaðurarrow_forward
Daníel Thor Bjarnason og Pétur Eggerz mótmælendur og Oddur Ástráðsson lögmaður ræða við okkur um Mótmælin í skuggasundinu, afleiðingar þess og málaferlin við ríkið. Við spyrjum almenning og heyrum skoðanir fólks á valdbeitingu lögreglumanna. Halldór Guðmundsson bókaútgefandi með meiru rýnir í úrslit kosninganna í Þýskalandi. Hann segir uppgang fasisma mikið áhyggjuefni og ræðir nýja stöðu Íslands í alþjóðlegu tilliti í varnarmálum. Anastasia Bortuali og Helgi Felixsson kvikmyndagerðarfólk segja okkur frá heimildamyndinni Temporary Shelter sem frumsýnd var í gær. Anastasia er flóttakona frá Úkraínu og vill með myndinni byggja brú milli tveggja heima; flóttafólks og innfæddra. Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur hjá Mjólkursamsölunni, ræðir landbúnað, stóra ostatollamálið, ESB og stöðu bænda hér á landi nú um stundir. Hún segir að þungt hljóð hafi verið hjá bændum sem fjölmenntu á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í síðustu viku.