Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
arrow_forward
Hvers vegna er Salka svona nútímaleg greining á kynferðisofbeldi?
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við …
arrow_forward
Sagði Marco Rubio nokkuð annað en JD Vance sagði í fyrra?
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.
Þættir
Sprúttsalar, Færeyjar, loftlagsmál, umhverfi og byggðamálarrow_forward
Vegna hávaða af framkvæmdum er þáttur kvöldsins snöggsoðinn (og í sumum viðtölum má heyra bornið í fjarska). Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi ræðir ólöglega áfengissölu og siðlausa áfengisframæleiðendur og Carl Jóhan Jensen rithöfundur segir fréttir fra Færeyjum, títt af bókmenntum og pólitík. Árni Finnsson hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands auglýsir eftir fleiri talsmönnum umhverfisverndar og Andrés Skúlason ræðir umhverfis- og byggðamál.
Helgi-spjall: Þorvaldur Kristinssonarrow_forward
Þorvaldur Kristinsson bókmenntafræðingur, ritstjóri, þýðandi, rithöfundur og baráttumaður segir frá lífshlaupi sínu í gegnum listir og réttlætisbaráttu.
Vikuskammtur: Vika 1arrow_forward
Í fyrsta þætti Rauða borðsins á glænýju ári, Vikuskammti, fær Björn Þorláksson til sín góða gesti til að gera upp líðandi stundu og ræða helstu fréttir og tíðaranda. Þau Viðar Eggertsson leikari, Margrét Tryggvadóttir rithöfundur, Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur og Matthías Imsland framkvæmdastjóri ræða stöðu samfélagsins og horfur næstu vikur – nú þegar hrein valdaskipti hafa orðið á Alþingi og sitthvað gæti tekið breytingum. Þá fær Áramótaskaupið sérstaka athygli í umræðunni.
Helgi-spjall: Guðmundur í Afstöðuarrow_forward
Guðmundur Ingi Þórodsson formaður Afstöðu, félags fanga, segir frá æsku sinni og uppruna, refilsstigum og beinum brautum, fordómum og ungum dómum.
Vikuskammtur: Vika 51arrow_forward
Gestir borðins að þessu sinni eru úr öllum áttum og hyggjast fara um víðan völl um liðna viðburðaríka fréttaviku. Á boðstólnum eru skipulag í Breiðholti, vinnumansal, ný ríkisstjórn, hvalveiðar, rafbyssur, fyrirtækjaleiksskólar, stúdentar og Iceguys. Þetta eru þau Saga Kjartansdóttir así, Lísa Margrét Gunnarsdóttir, formaður lís, Jón D Ásgeirsson arkitekt og Stefán Víðisson.
Öryggismál, galdur, bókaball, fyrirtækjavæðing og skrautleg skilaboð til stjórnvaldaarrow_forward
Við Rauða borðið í kvöld er umræðan lífleg og nær yfir mörg svið. Fyrstur mætir Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara og ræðir um fyrirtækjavæðingu leikskólans. Valur Ingimundarson prófessor fjallar um minni áhuga stjórnvalda á norðurslóðum og breytt mat á öryggismálum og því næst ræðir Hilmar Örn Hilmarsson, Allsherjargoði um trú og tóna tilverunnar, dauðann, lífið og galdurinn í tilefni sólstöðuhátíðarinnar framundan. Sex höfundar bregða upp balli, þau Linda Vilhjálmsdóttir, Margrét Lóa Jónsdóttir, Daníel Daníelsson, Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Sunneva Kristín Sigurðardóttir og Karólína Rós Ólafsdóttir koma að rauða borðinu á mörkum flóðs og fjöru og segja okkur frá útgáfureynslu sinni og lesa brot úr nýútkomnum bókum sínum. Nýteiknaður hvalur er leynisgestur á ballinu. Í lok þáttar safnast aktívistarnir Sigtryggur Ari Jóhannsson, Pétur Eggerz, Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, Unnur Andrea Einarsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir saman við rauða borðið og föndra jólakort með skýrum skilaboðum til raðamanna. Föndrað með föndra jólakort með skýrum skilaboðum til ráðamanna.
Fátækt, ofbeldi, ljóð, innanríki, hvað er framundan og skaðaminnkun arrow_forward
Myndlistamaðurinn og öryrkinn Georg Jónasson ræðir við Maríu Lilju um fátækt frá fyrstu hendi, myndlistina og allt þar á milli. Þá mæta til leiks Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sérfræðingur í stafrænu kynferðisofbeldi og Linda Dröfn Gunnarsdóttir, forstýra Kvennaathvarfsins og ræða um ofbeldi í nánum samböndum. Oddný Eir og Vigdís Grímsdóttir halda áfram með ítarlegt bókaspjall. Fyrstur að borði er Bragi Ólafsson með nýja bók Innanríkið Alexíus. Þar strax í kjölfarið verður staða ljóðsins krufin mtt. Tveggja nýútkominna verka skáldkvennanna Guðrúnar Hannesdóttur, Sigurbjargar Þrastardóttur. Sigurjón M. fær til sín álitsgjafa úr ólíkum áttum til að spá fyrir um framhaldið í samfélaginu þetta eru þau Valur Grettisson, Bryndís Haraldsdóttir og Auður Alfa Ólafsdóttir. Í lokin kemur Svala Jóhannesardóttir formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun, og ræðir um velsæld áfengis- og vímuefnasjúklinga.
Þýskaland, neytendur, alþjóðakerfið, dauðinn, börn mæðra sinna og bókarspjallarrow_forward
Ragnar Hjálmarsson, doktor í stjórnarháttum, ræðir um fall stjórnarinnar og nýtt pólitískt landslag í Þýskalandi. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna bíður spenntur eftir því hvort ný ríkisstjórn bæti hag neytenda. Þórdís Ingadóttir prófessor í lögum við Háskólann í Reykjavík ræðir hvernig alþjóðaréttarkerfið er að styrkjast á sama tíma og vettvangur alþjóðastjórnmála veikist. Vigfús Bjarni Albertsson fyrrum sjúkrahússprestur ræðir um lífið, dauðann og lífsglímuna. Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður aðstoðaði móður sína Ágústu Oddsdóttur við bók hennar um listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur og Oddný Eir Ævarsdóttir rtihöfundur skrifaði og ritstýrði bók um ævistarf móður sinnar, Guðrúnar Kristjánsdóttur. Þau koma öll að Rauða borðinu og ræða bækurnar, listina, tengsl barna við mæður sínar (og öfugt) og hvernig það er að vinna með fjölskyldunni sinni. Í lokin koma rithöfundarnir Valur Gunnarsson og Gunnar Theodór Eggertsson og ræða bækur og samfélag.
Snjóflóð, Seyðisfjörður, ljóðadjamm, Gaza og niðurbrot verkalýðsfélagaarrow_forward
Ólöf Þorvaldsdóttir og Logi Kristjánsson hafa skrifað bókina Fjall í fangið, sem fjallar um snjóflóðin í Neskaupstað en líka um samfélagið sem flóðin féllu á, sérstakt samfélag sem var mótað af völdum og áhrifum sósíalista. Jón Þór Þorvaldsson, formaður félags atvinnuflugmanna, ræðir tilraunir flugfélaga til niðurbrots á verkalýðsfélögum og félagsleg undirboð og áhrif þess á kjör flugstétta og samfélagið allt. Við ræðum ástandið á Gaza við Magneu Marínósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og Guðrúnu Margrétu Guðmundsdóttur, mannfræðing. Þær eru báðar sérfræðingar í málefnum Miðausturlanda. Að lokum koma ljóðskáldin Anton Helgi Jónsson, Halla Þórðardóttir og Þórunn Valdimarsdóttir og ræða um ljóðlistina, ljóðadjammið og leyfa okkur heyra lljóð úr nýútkomnum bókum sínum.
Helgi-spjall: Linda Vilhjálmsarrow_forward
Linda Vilhjálmsdóttir skáldkona segir okkur frá áfalli sínu, sjálfsmynd, skáldskap og öllu því sem hefur gert hana að því sem hún er.