Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Sumarþáttur um heimsenda

Sumarþáttur um heimsendaarrow_forward

S05 E142 — 07/03/2024

Oddný Eir Ævarsdóttir er gestastjórnandi að þessu sinni ásamt Gunnar Smára Egilssyni. Þau fá heimsókn: Haukur Már Helgason rithöfundur, Þuríður Jónsdóttir tónskáld og Pétur Gunnarsson rithöfundur koma og ræða heim á heljarþröm, stríð, niðurbrot lýðræðis og hvernig heimsendir kann að líta út. Síðan heyrum við um kosningar: Guðmundur Auðunsson hagfræðingur segir okkur frá kosningum í Bretlandi á morgun og Einar Már Jónsson sagnfræðingur frá kosningum í Frakklandi um helgina. Í lokin ræðir Gunnar Smári við Ragnheiði Gyðu Jónsdóttur um Ríkisútvarpið.

Sumarþáttur Rauða borðsins

Sumarþáttur Rauða borðsinsarrow_forward

S05 E141 — 07/01/2024

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er gestastjórnandi Rauða borðsins í kvöld ásamt Gunnari Smára Egilssyni. Þau spjalla um heima og geima og fá til sín gesti, Marion Herrera heimspeking, þyrluflugmann og hörpuleikara og Einar Þór Jónsson þroskaþjálfara og aktivista. Í lokin ræðir Gunnar Smári við Ævar Kjartansson útvarpsmann um Ríkisútvarpið.

Helgi-spjall: Sóley Tómasar

Helgi-spjall: Sóley Tómasararrow_forward

S05 E140 — 06/29/2024

Sóley Tómasdóttir kemur í helgi-spjall og segir okkur frá óþekktinni og femínismanum sem hún fékk í vöggugjöf, átökum við samherja og íhaldssemi, sigrunum sem konur hafa unnið og ósigrunum sem hún upplifði innan Vg.

Vikuskammtur: Vika 26

Vikuskammtur: Vika 26arrow_forward

S02 E139 — 06/28/2024

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Lóa Hjálmtýsdóttir myndlistakona og söngkona, Þórunn Wolfram doktor í umhverfisfræðum og varaþingmaður Viðreisnar, Svala Magnea Ásdísardóttir blaðakona og formaður Málfrelsis og Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Írans og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af elliglöpum, fylgishruni og kosningaskjálfta innan stjórnmála, frelsun manns úr fangelsi, fótbolta og okri.

Vg, húsnæðismarkaðurinn, heimsmálin og Frakkland

Vg, húsnæðismarkaðurinn, heimsmálin og Frakklandarrow_forward

S05 E138 — 06/27/2024

Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður Vg talar um stöðu flokksins, rætur hans og framtíð. Jón Ferdínand Estherarson blaðamaður og Atli Þór Fanndal starfsmaður Pírata ræða um húsnæðismál og einkum leigumarkaðinn. Tjörvi Schiöth fjallar um Bólivíu, Ísrael og Bandaríkin og Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur og Mörður Árnason íslenskufræðingur fjalla um franska pólitík.

Vopnvæðing samsæriskenninga, vandi Vg og skóla og pólitísk list

Vopnvæðing samsæriskenninga, vandi Vg og skóla og pólitísk listarrow_forward

S05 E137 — 06/26/2024

Við ræðum við Eirík Bergmann um vopnvæðingu samsæriskenninga, nýja hægrið og könnun Maskínu sem mælir Sjálfstæðisflokkinn með 14,7% fylgi. Lilja Rafney Magnúsdóttir segir okkur hvers vegna grásleppa var kornið sem fyllti mælinn og fékk hana til að ganga úr Vg. Jón Pétur Zimsen aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla segir að lagaskyldu sé ekki sinnt þar sem nemendur í grunnskólum fái ekki þá menntun sem þeim ber samkvæmt lögum. Steinunn Gunnlaugsdóttir er með sýningu í Gluggagallerínu Stétt og kemur að ræða hana við Rauða borðið ásamt Jóni Proppé listfræðingi. Er listin að verða pólitískari?

Pólitíkin, Ríkisútvarpið og konur í sögunni

Pólitíkin, Ríkisútvarpið og konur í sögunniarrow_forward

S05 E136 — 06/25/2024

Við byrjum á pólitísku uppgjöri. Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og Sjálfstæðisflokksmaður, Sigmundur Erni Rúnarsson blaðamaður, skáld og Samfylkingarmaður, Sunna Valgerðardóttir starfsmaður þingflokks Vg og Tómas Ellert Tómasson byggingarverkfræðingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins ræða pólitíkina, um hvað hún er og hvert hún stefnir. Lára Magnúsdóttir sagnfræðingur ræðir um Ríkisútvarpið og skort á stefnu þar innandyra. Og Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur segir okkur frá vinnukonunni Guðrúnu Ketilsdóttur, sem kölluð var Gunna suða, og stórbýlinu Möðruvöllum í Hörgárdal þar sem Ragnheiður Scheving stýrði búi.

Stríð breiðist út, þinglok og fatlað fólk í sögunni

Stríð breiðist út, þinglok og fatlað fólk í sögunniarrow_forward

S05 E135 — 06/24/2024

Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og Tjörvi Schiöth doktorsnemi ræða stríðið í Úkraínu og skuldbindingar Íslands gagnvart því. Eru stjórnvöld að grafa undan öryggi landsins með stefnu sinni? Í síðasta Þingi Rauða borðsins fyrir sumarfrí verður farið yfir umdeild þingmál sem fóru í gegn á lokametrum vorþingsins. Þingmennirnir Björn Leví Gunnarsson, Inga Sæland og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi fara yfir stöðuna. Sólveig Ólafsdóttir doktor í sagnfræði segir okkur frá ritgerð sinni: Eitt hundrað og eina sögu af jaðri samfélagsins, sem fjallar um fatlað fólk í sögunni.

Helgi-spjall: Guðrún Hallgríms

Helgi-spjall: Guðrún Hallgrímsarrow_forward

S05 E134 — 06/22/2024

Gestur okkar í Helgi-spjalli er Guðrún Hallgrímsdóttir verkfræðingur sem segir okkur frá Rauðsokkum, þörungum, Austur-Þýskalandi, sínu fólki , uppvexti og mótun, hugsjónum og harmi.

Vikuskammtur: Vika 25

Vikuskammtur: Vika 25arrow_forward

S05 E133 — 06/21/2024

Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Björgvin Þór Þórhallsson kennari, Jovana Pavlović mannfræðingur, Viktor Pétur Finnsson formaður SUS og Zúzanna Korpak nemi í hagnýtri siðfræði og þjálfari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af þinglokum, hraunrennsli, þjóðhátíð og pólitískum átökum.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí