Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
arrow_forward
Hvers vegna er Salka svona nútímaleg greining á kynferðisofbeldi?
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við …
arrow_forward
Sagði Marco Rubio nokkuð annað en JD Vance sagði í fyrra?
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.
Þættir
Helgi-spjall: Björk Vilhelmsarrow_forward
Björk Vilhelmsdóttir, félagsráðgjafi og baráttukona mætir í morgunkaffi við Rauða borðið og er það María Lilja sem tekur á móti henni. Þær ræða um tilveruna þá og nú, fjölskylduna, stóra og litla sigra og sitthvað annað um lífsins ólgusjó.
Vikuskammtur: Vika 45arrow_forward
Gestir Maríu Lilju eru að þessu sinni þau Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, Halldóra Mogensen, fyrrum þingmaður Pírata og formaður Samtaka um mannvæna tækni og Dr. Sólveig Ásta Sigurðardóttir rannsóknasérfræðingur.
Jamaíka, reynsluboltar, kynlífsverkafólk, Birta og skotveiðimennarrow_forward
Claudia A. Wilson segir Laufeyju Líndal frá eftirleik fellibylsins Melissu sem reið yfir eyjarnar í Karabíska hafinu í síðustu viku. Claudia ólst upp á eynni Jamaíku og segir okkur frá samfélaginu þar, sem nú bíða ýmsar áskoranir. Bogi Ágústsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Björg Eva Erlendsdóttir ræða fréttir og tíðaranda líðandi stundar, efnahagsmál, trúverðugleika opinberra stofnana, umhverfismál, nýjan borgarstjóra í New York og fleira. Björn Þorláks hefur umsjón með þættinum. Ari Logn frá Rauðu regnhlífinni samtökum kynlífsverkafólks mætir til Maríu Lilju og fer yfir nýlega ráðstefnu um málefni fólks í kynlífsvinnu. Halldóra Kristin Guðjónsdóttir og Linda Sólveig Birgisdóttir fjalla um skyndilegan dauða sona sinna. Einnig segja þær frá Birtu, landssamtökum, sem halda utan um fólk sem lendir í skyndilegu fráfalli barna sinna en það er Ragnheiður Davíðsdóttir sem ræðir við þær. Skotveiðimenn ætla ekki að una aðgerðalaust úrskurði sem hefur leitt til lokunar skotsvæðis þeirra í Álfsnesi. Áki Ármann Jónsson, formaður Skotvís og Róbert Reynisson formaður Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis ræða við Björn Þorláks.
Trump/Mamdani, lögreglubrot, gervigreind, réttur settur og börnarrow_forward
Sagnfræðingarnir Guðmundur Hálfdanarson og Sveinn Máni Jóhannesson fara yfir pólitíska sviðið í Bandaríkjunum með Gunnari Smára eftir sigur Demókrata í öllu því sem kosið var um, ekki síst góðan sigur Zohran Mamdani verðandi borgarstjóra í New York. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis, Eva Hauksdóttir lögmaður og Helgi Gunnlaugsson prófessor í afbrotafræði við HÍ ræða við Maríu Lilju um hvað gerist þegar lögreglan brýtur lög. Þórhallur Magnússon rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands ræðir gervigreindina við Björn Þorláks. Gísli Tryggvason lögmaður mætir sem áður til Björns Þorlákssonar til að ræða sérstaklega lagaleg álitaefni tengd fréttum líðandi stundar. Formaður SAMFÉS, Valgeir Þór Jakobsson lýsir reynsluheimi unglinga í félagsmiðstöðvunum í samtali við Björn Þorláks og ræðir vímuefna forvarnir.
New York, kynfræðsla í kirkjum, ástin, stóriðja og gölluð húsarrow_forward
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir stjórnmálafræðingur, ráðgjafi og aðjunkt á Bifröst ræðir um borgarstjórnarkosningar í New York við Gunnar Smára þar sem kannanir benda til að Zohran Mamdani, yfirlýstur sósíalisti, verði kjörinn borgarstjóri. Skúli S. Ólafsson prestur í Neskirkju og Bjarni Karlsson prestur siðfræðingur á sálgæslustofunni Hafi ræða við Gunnar Smára um kynfræðslu í fermingarfræðslu, dýrðarljómann og holdið. Leikararnir Kristín Þorsteinsdóttir, Heiðdís Hlynsdóttir og Rakel Ýr Stefánsdóttir, María Ellingsen leikstjóri og Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóri Tjarnarbíós ræða um Jónsmessunæturdraum eftir Shakespeare sem sýndur er í Tjarnarbíói. Þórólfur Matthíasson, doktor í hagfræði og prófessor emeritus við HÍ, hefur oft þorað að leggja fram rök, sem valdamiklar blokkir í samfélaginu hafa hafið herferð gegn. Í samtali við Björn Þorláks ræðir hann Grundartanga, stöðu stóriðju, hávaxtastefnuna, kjarasamninga og fleira. Stefán Hrafn Jónsson prófessor í félagsfræði ræðir um galla nýjum húsum við Gunnar Smára, en rannsókn hans bendir til að galli sé í miklum meirihluta nýrra húsa og mikill og kostnaðarsamur í mjög mörgum.
RÚV, húsnæðismál, Súdan og menntunarrow_forward
Stefán Jón Hafstein, formaður stjórnar Rúv, segir í samtali við Björn Þorláks að tekið verði upp aðhald hjá Ríkisútvarpinu til að stöðva hallarekstur. Skilja má á máli hans að eitthvað verði um uppsagnir. Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá HMS ræðir áhrif húsnæðisaðgerðapakka ríkisstjórnarinnar á leigjendur við Maríu Lilju. Páll Ásgeir Davíðsson lögfræðingur hefur starfað fyrir alþjóðastofnanir víða, meðal annars í Súdan. Hann segir Gunnari Smára frá mannúðarkrísunni þar. Arna Magnea Danks, leikkona og kennari ræðir við Maríu Lilju um skóla án aðgreiningar, pisa-kannanir og sitthvað um vókið.
Helgi-spjall: Ársæll Arnarsonarrow_forward
Ársæll Arnarson prófessor ræðir listina að vera leiðinlegt foreldri. Hann segir frá sjálfum sér og leitast við að kryfja samfélagið í helgi-spjalli með Birni Þorláks. Hagur barna er Ársæli hugstæður og ber margt á góma.
Vikuskammtur: Vika 44arrow_forward
Gestir Maíru Lilju í vikuskammti eru þau Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage, foreldrafræðingur og uppeldisráðgjafi Katla Ásgeirsdóttir og Valgerður Þ. Pálmadóttir, kennari í Háskóla Íslands í kynjafræði og hugmyndasögu.
Argentína, húsnæði, Dúlla í löggunni, heimsmálin og vímaarrow_forward
Felix Woelflin segir Gunnari Smára frá pólitísku ástandi í Argentínu eftir ágætan sigur flokks Milei forseta í aukakosningum til þings. Hvaðan kemur Milei og hvers vegna vilja svona margir treysta honum fyrir stjórn landsins? Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna fer yfir húsnæðispakkann sem ríkisstjórnin i gær með Gunnari Smára. Kristín Svava Tómasdóttir sagnfræðingur segir Gunnari Smára frá bók sinni Fröken Dúlla, sögu Jóhönnu Knudsen, sem er alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir heimsmálin í samtali við Gunnar Smára, ekki síst átökin milli Bandaríkjanna og Kína í breyttum heimi. Þorsteinn Úlfar Björnsson kvikmyndagerðarmaður hefur skrifað á annan tuga bóka sem tengjast vímu og menningu. Hann er með umdeildar skoðanir og ekki hefur verið fjallað um bækur hans. Hann segir Birni Þorláks frá sjónarhorni sínu.
Húsnæðismál, beittir pistlar, Trumptíminn, reynsluboltar og dauðinnarrow_forward
Breki Karlsson ræðir húsnæðismálin, grun um samráð í sorpþjónustu og fleiri mál sem brenna á landsmönnum í viðtali við Björn Þorláks. Felst einhver spenna – jafnvel háski – í því að vera borgaraleg kona en skrifar beitta pistla og gagnrýna um þjóðmál, stundum svo svíður undan? Sif Sigmarsdóttir rithöfundur og pistlahöfundur svarar þeirri spurningu í samtali við Björn Þorláks. Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi ræða við Gunnar Smára um Trump og áhrif hans á bandarískt samfélag. Hávaxtastefnan, húsnæðisvandi, stóriðjan, vægi atkvæða, yfirlöggan, snjórinn og fleiri mál verða til umræðu hjá reynsluboltunum sem Björn Þorláks ræðir við: Ólafi Þ. Harðarsyni, Oddnýju Harðardóttur og Steingerði Steinarsdóttur. Sigrún Alba Sigurðardóttir doktorsnemi ræðir við Gunnar Smára um reynslu uppkominna barna af veikindum og dauða aldraðra foreldra, en hún skrifaði bókina Þegar mamma mín.