Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Spilling, snjórinn, hagfræði, loftsteinn og bernskan

Spilling, snjórinn, hagfræði, loftsteinn og bernskanarrow_forward

S06 E191 — 10/28/2025

Jódís Skúladóttir, fyrrum þingkona, segir mál ríkislögreglustjóra vekja margar spurningar og kalla á rannsókn. Hún ræðir í samtali við Björn Þorláks einnig löskuð heilbrigðiskerfi sem fólki er boðið upp á, segir að mennsku og þjónustu hafi hrakað og ber saman íslenskan veruleika við Norðurlöndin. María Lilja skellti sér í kraftgallann og óð út í skaflana til að taka púlsinn á borgarbúum sem voru misvelundirbúnir fyrir snjóinn. Er lofsteinn á leið til jarðar? Sævar Helgi Bragason eða stjörnu Sævar kemur til Maríu Lilju og svarar hvort við þurfum að óttast að verða loftsteini að bráð á næstu árum. Mikið hefur farið fyrir fregnum og upplýsingum af Atlas 3i og ekki alltaf víst hvaða upplýsingum ber að trúa. Við endurflytjum samtal Björns Þorláks við Gunnhildi Fríðu Hallgrímsdóttur hagfræðing frá Harward sem útilokar ekki að íslensk efnahagsstjórn kunni að hafa verið sú versta í heimi. Skúli Thoroddsen lögfræðingur segir Gunnari Smára frá bernsku- og æskuminningum sínum sem hann hefur sett á bók: Dorgað í djúpi hugans.

Hávaði, kapítalisminn, stóru málin og rammaáætlun

Hávaði, kapítalisminn, stóru málin og rammaáætlunarrow_forward

S06 E190 — 10/27/2025

Íbúar á Álfsnesi í reykjavík mótmæltu hávaða við skotvelli og höfðu loks betur í máli sem þau höfðuðu. Björn Þorláks ræðir við þrjá íbúa, Kristbjörn Haraldsson, Önju Þórdísi Karlsdóttur, Sigríði Ingólfsdóttur og Ólaf Hjálmarsson hljóðverkfræðing um þýðingu úrskurðarins og baráttuna að baki. María Lilja fær Pétur Eggerz, tæknifræðing og aktívista í spjall um Gaza og fara þau yfir hvernig ástandið þar tengist uppgangi fasimsa hér á landi. Þau ræða um upplýsingu og fjölmiðla, kapítalmisma og öflin sem öllu stýra. Kristín Vala Ragnarsdóttir jarðvísindakona og umhverfissinni, ræðir nokkrar stórar spurningar á sviði umhverfismála. Höfin á norðurslóðum, losun gróðurhúsalofttegunda og annað sem varðar mannkyn allt, en ekki síst okkur Íslendinga. Björn Þorláks ræðir við hana. Svanfríður Jónasdóttir, formaður verkefnisstjórnar Rammaáætlunar, fer yfir sögu rammaáætlunar, deilurnar og horfurnar. Lifir hún sem stjórntæki á tímum þar sem haldið er fram að Ísland þurfi að stórauka orkuframleiðslu? Í hvað ætti orkan að fara? Björn Þorláks ræðir við Svanfríði.

Helgi-spjall: Bergsveinn Birgisson

Helgi-spjall: Bergsveinn Birgissonarrow_forward

S06 E189 — 10/25/2025

Bergsveinn Birgisson fræðamaður, rithöfundur og Strandamaður segir frá fortíð sinni og sýn sinni á framtíðina, vegleysum nútímans og trú sinni á húmanismann sem gæti verið að gleymast.

Vikuskammtur: Vika 43

Vikuskammtur: Vika 43arrow_forward

S06 E188 — 10/24/2025

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson heimspekingur, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Jónas Már Torfason lögfræðingur og Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af menningarstríði, mannréttindabaráttu, atvinnuþrefi og stríðsátökum.

Kvennaverkfall, réttur, konur, bræður og piparmeyjar

Kvennaverkfall, réttur, konur, bræður og piparmeyjararrow_forward

S06 E187 — 10/23/2025

Það er kvennaverkfall á morgun en ekki allar konur hafa kost á því að taka þátt. Oft er rætt um konur af erlendum uppruna í þessu samhengi. Jasmina Vasjovic, stjórnmálafræðingur ræðir við Maríu Lilju um málið. Vaxtamálið, Ný stjórnarskrá, áfengi og börn, mál Steinþórs Gunnarssonar, þvingunarfækkun sveitarfélaga og sigur blaðamanns gegn sveitarfélagi verða til umræðu í þættinum Réttur er settur. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir þessi mál í samtali við Björn Þorláks. Hlín Agnarsdóttir höfundur og leikkonurnar Rósa Guðný Þórsdóttir og Guðbjörg Thoroddsen segja Gunnari Smára frá leiklestri á Allt er um okkur, leikriti um eldri konur í bókaklúbb og ræða um aldur, konur, kvennabaráttu, feminisma og kvennaverkfall. Bræðurnir Ólafur Þ. prófessor í stjórnmálafræði og Tryggvi Harðarson fyrrverandi námsmaður í Kína og fyrrum bæjarstjóri í Hafnarfirði og víðar segja frá ferð sinni til Kína og þeim stórkostlegu samfélagsumbreytingum sem þar hafa átt sér stað frá þeim tíma að Tryggvi fór til náms í Peking fyrir hálfri öld. Saga einhleypra kvenna á Íslandi hefur verið kortlögð og kemur út á bók eftir nokkra daga. Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir ræðir piparmeyjar og viðhorf til þeirra í samtali við Björn Þorláks.

Stjórnarskrá, baráttubíó, breytingarskeiðið, kyn og gervitónlist

Stjórnarskrá, baráttubíó, breytingarskeiðið, kyn og gervitónlistarrow_forward

S06 E186 — 10/22/2025

Hvar er nýja stjórnarskráin? 13 ár eru liðin síðan Alþingi boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá. Hjörtur Hjartarson ræðir við Björn Þorláks. Barði Guðmunds­son og Hrafn­hild­ur Gunn­ars­dótt­ir eru höfundar heimildarmyndarinnar Bóndinn og verksmiðjan sem fjallar um baráttu Ragnheiðar Þorgrímsdóttur á Kúludalsá gegn mengun frá álverinu í Hvalfirði. Þau segja Gunnari Smára frá myndinni auk annarra verka. Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs, greinir frá staðli um aukna ábyrgð vinnuveitenda á stuðningi við konur á breytingaskeiði. Björn Þorláks ræðir við Helgu Sigrúnu. Arnar Pálsson prófessor lífupplýsingafræði við Háskóla Íslands segir Gunnari Smára frá fjölbreytileikanum í náttúrunni og hversu illa tvíhyggja mannsins heldur utan um hinn líffræðilega raunveruleika. Eru kynin fleiri en tvö? María Lilja ræðir að lokum við Óla Dóra, menningarvita og plötusnúð um gervigreindartónlist.

Jarðir, heimsmál, Gaza, framboð og poppmúsík

Jarðir, heimsmál, Gaza, framboð og poppmúsíkarrow_forward

S06 E185 — 10/21/2025

Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins vill takmarka möguleika erlendra aðila til að kaupa landsvæði á Íslandi. Hún ræðir málið í samtali við Björn Þorláks, sem og íslenskuna, börnin okkar og fleiri auðlindir. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer í samtali við Gunnar Smára yfir öryggismál Evrópu eftir afdrifaríkt símtal þeirra Trump og Pútín og hver staða Evrópu er í aðdraganda fundar þeirra í Búdapest. Hjálmtýr Heiðdal, formaður félagsins Ísland Palestína, flytur Maríu Lilju fréttir af Gaza og setja þau ástandið meðal annars í samhengi við pólitíkina á Vesturlöndum. Páll Baldvin Baldvinsson leikstjóri býður sig fram til formanns Leikfélags Reykjavíkur. Hann segir Gunnari Smára hvers vegna. Jón Kjartan Ingólfsson bassaleikari hefur unnið meira en þrjá áratugi í sömu tónlistarbúðinni. Hann deilir kunnáttu sinni í samtali við Björn Þorláks og ræður söguna, hvernig venjur breytast í bransanum og kynjabyltinguna.

Sundabraut, umhverfismál, flóttafólk, fjölmiðlar og transréttindi

Sundabraut, umhverfismál, flóttafólk, fjölmiðlar og transréttindiarrow_forward

S06 E184 — 10/20/2025

Gauti Kristmannsson prófessor og varaformaður Íbúafélags Laugardals og Ásta Þorleifsdóttir jarðfræðingur og íbúi í Grafarvogi ræða við Maríu Lilju um áætlun vegagerðarinnar um að gera sundabraut að brú og áhrifin sem það kann að valda til framtíðar. Hallgrímur Óskarsson hjá Carbon Iceland og Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar ræða vindorku og umhverfismál í þröngu og víðu samhengi. Björn Þorláks ræðir við þau. Málþing fór fram á vegum Landverndar um helgina þar sem rætt var m.a. um vísindaleg og pólitísk rök hvað varðar víðerni landsins og fleira. Sema Erla Serdarouglu, ræðir við Maríu Lilju um fyrirætlanir yfirvalda í málefnum flóttafólks og fangabúðir fyrir flóttafólk þar sem vista megi börn án dóms og laga. Óbreytt ástand í fjölmiðlaumhverfinu gengur ekki, gera þarf róttækar breytingar á Ríkisútvarpinu. Þetta segir Óðinn Jónsson blaðamaður og fyrrum fréttastjóri Rúv. Hann varar við blöndun almannatengla og blaðamanna en ný deild hefur verið stofnuð innan Blaðamannafélags Íslands með almannatenglum. Arna Magnea Danks, sérlegur fréttaritari mannréttinda á Samstöðinni ræðir við Maríu Lilju um áróðursherferð Samtaka 22 sem beinist gegn transfólki og leitast þær við að setja málin í stærra samhengi við bakslag í réttindarbaráttu minnihlutahópa annars staðar á vesturlöndum.

Helgi-spjall: Diddi Frissa

Helgi-spjall: Diddi Frissaarrow_forward

S06 E183 — 10/18/2025

Sigurður Friðriksson, oftast kallaður Diddi Frissa, er goðsögn í lifanda lífi. Hann fór ungur til sjós, varð farsæll skipstjóri, hætti að drekka og skipti yfir í ferðaþjónustu þar sem hann hefur stigið ný skref sunnan heiða sem norðan milli þess sem hann syndir í vötnum og í sjónum. Björn Þorláks ræðir við Didda í helgispjalli Samstöðvarinnar.

Vikuskammtur: Vika 42

Vikuskammtur: Vika 42arrow_forward

S06 E182 — 10/17/2025

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Brynhildur Stefánsdóttir snyrtifræðingur og bóndi, Guðmundur Pétursson gítarleikari, Máni Pétursson umboðsmaður og Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson mannfræðingur og gusumeistari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af dómsmálum, vopnahléi, langferðum, sigrum og stórgróða.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí