Landssambandi smábátaeigenda, Strandveiðifélagi Íslands (STÍ) og Samtökum fiskframleiðenda og útflytjenda hafna því að nöfn samtakanna séu bendluð við niðurstöður nefndar Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um sjávarútvegsstefnuna, sem kölluð er Auðlindin okkar. Formenn samtakanna segja vinnubrögð Svandísar forkastanleg, að kynna niðurstöður án þess að bera þær undir svo kallaða samráðsnefnd þar sem formennirnir sátu.
Sameiginleg fréttatilkynning frá Landssambandi smábátaeigenda (LS), Strandveiðifélagi Íslands (STÍ) og Samtökum fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ) hljómar svo:
Í maí 2022 skipaði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra fjóra starfshópa til að greina
áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum. Að auki skipaði ráðherra 27 manna „Samráðsnefnd“ sem við undirritaðir settumst í og töldum að gegndi því hlutverki að taka við tillögum og niðurstöðum starfshópanna til frekari úrvinnslu.
Við ákváðum að þiggja setu í „Samráðsnefndinni“ í þeirri von að á okkur yrði hlustað og áherslur okkar myndu koma fram í skýrslu starfshópanna. Nú, u.þ.b. 16 mánuðum síðar blasir við skýrsla frá starfshópum nefndarinnar. Skýrsla sem ekki hefur verið kynnt í Samráðsnefndinni hvað þá að leitað hafi verið eftir athugasemdum nefndarinnar við hana. Vinnubrögðin eru forkastanleg og kallar fram spurninguna hvert var hlutverk Samráðsnefndinnar þar sem skýrslan sem kynnt hefur verið er ekki hennar verk. Kynningin 29. ágúst sl endurspeglaði þetta fullkomlega.
Undirritaðir, f.h. þeirra félagasamtaka sem við erum í forystu fyrir lýsum því hér með yfir að við höfnum því alfarið að okkar samtök séu bendluð við niðurstöður „Auðlindarinnar okkar“.
Undir þetta rita Arnar Atlason formaður SFÚ, Arthur Bogason formaður LS og Kjartan Páll Sveinsson formaður STÍ.