Peter Pellegrini, forseti slóvaska þingsins og leiðtogi stjórnarflokksins Hlas, hafði sigur í seinni umferð forsetakosninganna í Slóvakíu á laugardaginn var. Litið er á sigur Pellegrini sem sigur fyrir vinstri þjóðernispopúlistann Robert Fico, forsætisráðherra landsins, en Pellegrini er einarður stuðningsmaður Fico.
Fyrri umferð kosninganna fór fram 23. mars síðastliðinn og þar fékk Pellegrini óvænt næstflest atkvæði, á eftir Ivan Korčok. Sá er frjálslyndur stuðningsmaður Evrópusambandsins en bæði Fico og Pellegrini hafa báðir lýst miklum efasemdum varðandi Evrópusamstarfið. Þar eð Korčok hlaut ekki yfir helming atkvæða í fyrri umferð kosninganna varð að kjósa á nýjan leik. Þar hafði Pellegrini betur sem fyrr segir. Hann hlaut rúm 53 prósent atkvæða en Korčok tæp 47 prósent.
Fico og Smer flokkur hans unnu kosningasigur í þingkosningunum í Slóvakíu í september síðastliðnum. Kosningaloforð flokksins voru meðal annars að stöðva hernaðaraðstoð til Úkraínu. Fico hefur fært utanríkispólitík Slóvakíu í átt að stuðningi við Rússa.
Litið er á sigur Pellegrini sem staðfestingu á styrkri stöðu Fico og ríkisstjórnar hans, og þeim stefnumálum sem sett hafa verið á oddinn. Sjálfur lýsti Pellegrini sigri sínum með þeim hætti einnig.