Trump sleppur hræódýrt frá dómsmáli

Óhætt er að segja að Donald Trump hafi sloppið vel frá dómi Juans M. Merchan, í máli sem ýmist hefur verið kallað vændiskonu- eða þöggunarmálið.

Dæmt var í málinu í dag eftir langa bið og er niðurstaðan sú að Trump er ekki gerð sérstök refsing í málinu utan þess að hann fer á sakaskrá.

Flestir fréttaskýrendur töldu að dómarinn myndi dæma Trump til hárra fjársekta en fyrirfram þótti ólíklegt að hann myndi þurfa að dúsa í fangelsi.

Vegna stöðu Trump sagðist Merchan dómari ekki geta dæmt annað en það sem hann dæmdi!

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí