Hlýtt á milli Kristrúnar og Guðrúnar
Sögulegt er að kona hafi loks verið kjörin formaður Sjálfstæðisflokksins og því ber að fagna.
Þetta sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar í svari við fyrirspurn frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur, glóðvolgum formanni Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag vegna stöðu á vinnumarkaði.
Kristrún sagðist hlakka til samstarfsins með Guðrúnu, sem þakkaði á móti hlý orð.
Þóttust reyndir þingmenn sjá meiri þýðu í samskiptum formanna þessara tveggja flokka og á köflum höfuðandstæðinga en um langt skeið.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.
Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward