Vaxtalækkun og minni verðbólga

Íslandsbanki hefur lækkað vexti og verðbólgan hefur lækkað um 0,4 prósent.

Hagstofan segir að verðbólguskot í apríl hafi gengið til baka og má ljóst vera að sérfræðingar bankanna sem töldu rétt að Seðlabankinn lækkaði ekki vexti síðast þegar ákvörðun var tekin, höfðu rangt fyrir sér.

Covid kveikti verðbólgu sem fór mest í 10,2 prósent. Hefur vaxtafár verið hlutskipti Íslendinga um missera skeið en aukin von er um mannsæmandi aðstæður fyrir aðra en fjármagnseigendur miðað við síðustu mælingar.

Það munar um minna í verðbólgumælingunni nú að flugfargjöld til útlanda hafa lækkað um 7,3 prósent milli mánaða, þökk samkeppni, sem aðeins er þó virk í hluta viðskiptalífsins hér á landi.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí