Segir Trump hafa misst vitið

Sú var tíðin að Félag atvinnurekenda hér á landi leit með velþóknun vestur um haf til stjórnarhátta og áherslu í atvinnulífi. Nú er öldin önnur. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, ritar færslu á samfélagsmiðla í morgun vegna nýjustu ummæla Donalds Trump forseta Bandaríkjanna. Ólafur sér ekki betur en Trump hafi endanlega misst vitið.

„Í morgunsárið leyfði ég mér að efast – eins og margir aðrir – um að Donald Trump hefði raunverulega sent forsætisráðherra Noregs þessi skilaboð,“ skrifar Ólafur og vísar til ummæla þar sem Trump segist hættur að hugsa um frið í heiminum vegna þess að hann hafi ekki sjálfur hlotið friðarverðlaun Nóbels.

„Nú er Jonas Gahr Støre hins vegar búinn að staðfesta að svo sé. Við lifum á ótrúlegum tímum. Valdamesti maður heims er búinn að missa vitið og fólkið í nánasta hring hans í Washington er ennþá í hlutverki hirðmannanna í Nýju fötunum keisarans, sem mæra valdamanninn, hrósa búningi hans og halda uppi faldinum sem er ekki þarna. Ögn kaldhæðnislegt að atburðarásin þarna vestra sé eins og upp úr þessu ástsæla danska ævintýri,“ segir Ólafur.

Ólafi er brugðið, líkt og heimsbyggðinni.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí