Ekki verður annað séð en að sterk vinstri ára sé að færast yfir borgarstjórnarkosningarnar ef marka má ýmsa álitsgjafa sem keppast á félagsmiðlum um að hrósa oddvitum vinstri framboðanna í Reykjavík.
Þannig segir Egill Helgason eftir fjögurra mínútna frammistöðu Silju Sóleyjar Birgisdóttur, oddvita sósíalista í Silfri gærkvöldsins á Rúv, að þótt hann sé ekki sérlega líklegur til að kjósa Sósíalistaflokkinn sé það ekki útilokað:
„Ég sé ekki betur en að ný pólitísk stjarna sé að rísa í fyrsta sætinu,“ segir Egill og bendir á að Silja sé ðeins 25 ára.

„Klár, vel heima í málum og með skýra framsetningu,“ segir Egill.
„Frábær,“ segir Hallgrímur Helgason rithöfundur í athugasemd við færslu Egils á facebook.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, áður í Sósíalistaflokknum, sem jafnan hefur verið kosin vinsælasti borgarfulltrúinn, hefur einnig verið lofuð af hálfu fjölmiðlamanna undanfarið. Þannig hefur Atli Þór Fanndal blaðamaður viðurkennt að hann hafi vanmetið mátt Vinstrisins, sem Sanna veitir forstöðu. Kannanir hafa spáð Vinstrinu góðum árangri undanfarið en Silja Sóley ekki mælst inni.

Kosið verður 16. maí til sveitarstjórna um land allt. Samstöðin mun gera kosningunum ítarleg skil jafnt í upptakti kosninganna og þegar nær dregur. Í gærkvöld ræddi María Lilja við fulltrúa Vinstrisins í Hafnarfirði og má sjá hér:
https://youtu.be/yes-7jKuv6o?si=yJ0IAhSmswq2Ez8A