Hafnar tengslum og segir eigin frétt lögmæta

María Sigrún Hilmarsdóttir, fréttakona Rúv, segir að frétt hennar fyrir nokkrum dögum sem Dóra Björt borgarfulltrúi segir að hafi verið áróður fyrir Sjálfstæðisflokkinn, hafi snúist um að ein “bensínstöðvarlóð” hækkaði um 518.000.000 krónur á 20 mánuðum án þess að nokkrar framkvæmdir hæfust.

“Það hefur hvergi komið fram áður og skrýtið að það teljist ekki fréttnæmt. Í fréttinni er verið að varpa upp mynd af því hvað hefur gerst síðan borgin afhenti olíufélögunum þær með byggingarrétti,” segir María Sigrún í svari við fyrirspurn Samstöðvarinnar.

Dóra Björt telur að fjölskyldutengsl fréttakonu hafi gert Maríu Sigrúna vanhæfa til að fjalla um pólitík. Hún gefur í skyn að María Sigrún dragi taum Sjálfstæðisflokksins í fréttamennsku almannaútvarpsins.

“Ég veit ekki um hvaða fjölskyldutengsl er um að ræða en þetta eru 12 lóðir í Reykjavík. Við þekkjum öll einhverja sem eiga heima nálægt þessum lóðum svo ég skil ekki alveg,” segir María Sigrún um ásökun Dóru Bjartar.

“Fréttin snýst um gríðarleg verðmæti sem ganga kaupum og sölum,“ bætir hún við.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí