Ágústkosningin kosti 500-700 milljónir
Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, vildi í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag vita kostnað við þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst um framhaldið gagnvart ESB.
Fjármálaráðherra, Daði Már Kristófersson, svaraði að grunnkostnaður væri um 500 milljónir króna. Ekki hefði verið gert ráð fyrir kostnaðinum á fjárlögum.
Þá sagði Daði að kostnaður ætti ekki að stýra lýðræðislegu ferli líkt og þjóðaratkvæðisgreiðslu.
Sigríður Anderesen vitnaði til upplýsinga frá landskjörstjórn og fleiri aðilum sem bendi til að kostnaður við kosninguna verði nokkru hærri en fram kom í svari fjármálaráðherra. Sennilega ekki lægri en 700 milljónir króna.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.
Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward